Viðskipti innlent

Hvatt til sameininga

Lárus Welding, formaður Samtaka fjármálafyrirtækja, ræðir við félagsmenn. Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir tímabært fyrir fjármálafyrirtækin að huga að sameiningum.
Lárus Welding, formaður Samtaka fjármálafyrirtækja, ræðir við félagsmenn. Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir tímabært fyrir fjármálafyrirtækin að huga að sameiningum. MYND/SFF

Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir að fjármálafyrirtækin verði að huga að aðhaldi, sameiningum, krossstjórnarsetu og aukins gegnsæis í upplýsingagjöf.

„Æskilegt væri, með það að markmiði, að stuðla að heilbrigðum og traustum rekstri og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, að fjármálafyrirtæki og eigendur þeirra hugi ekki eingöngu að krosseignartengslum heldur einnig að krossstjórnarsetu í fyrirtækjum í fjármálaþjónustu," sagði Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, í ræðu á degi Samtaka fjármálafyrirtækja í fyrradag.

Þessi ábending var ein þeirra sex ábendinga til fjármálafyrirtækja sem Jónas setti fram í ræðunni. Hann sagði einnig að stjórnendur bankanna þyrftu að sýna að þeir kynnu að rífa seglin í þeim stormi og stórsjó sem nú gengi yfir „og lækka kostnað og minnka efnahag sinn". Hann benti á að meginábyrgðin hvíldi á stjórnendum og eigendum bankanna. Þeir nytu hagnaðarins og bæru tapið.

Jónas sagði einnig að nýta ætti núverandi aðstæður til að huga að hagræðingu og sameiningum á innlendum fjármálamarkaði. „Þá á ég ekki endilega við stór-samruna," sagði Jónas og benti á að hér á landi hefðu 34 fyrirtæki starfsleyfi sem lánafyrirtæki. Verðbréfafyrirtæki væru þarna ekki talin með.

Þá vill Jónas að bankar auki gegnsæi í upplýsingagjöf, auk þess sem bankarnir þyrftu, ef það hægir á í efnahagslífinu, að huga að útlánagæðum, grípa fljótt inn í séu vandræði í uppsiglingu og leggja strax til hliðar inn á afskriftarreikning. „Jafnframt þurfa fjármálafyrirtækin að gæta jafnræðis í meðhöndlun sinni á skuldurum."

„Í sjötta lagi er stóra verkefnið að vinna að fjármögnun og viðhalda lausafjárstöðu," sagði Jónas og bætti því við að bankarnir hefðu staðið vel að vígi þegar lausafjárerfiðleikar hófust á alþjóðamörkuðum. Hins vegar verði þetta ár tiltölulega létt í endurfjármögnun, en menn verði að sýna árvekni „því lausafjárerfiðleikar eru áhætta sem getur birst með skömmum fyrirvara". [email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×