Bíó og sjónvarp

Kung Fu í styttri útgáfu

Páll Óskar Hjálmtýsson
Einn mesti kvikmyndasafnari landsins.
Páll Óskar Hjálmtýsson Einn mesti kvikmyndasafnari landsins.

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík stendur nú sem hæst og er að sönnu mikið um dýrðir. Í kvöld verður sérlegur viðburður á vegum hátíðarinnar í Bæjarbíói í Hafnarfirði þar sem tónlistarmaðurinn ástsæli, Páll Óskar Hjálmtýsson, sýnir úrval af klassískum Kung Fu-myndum frá áttunda áratug síðustu aldar. Myndirnar eru allar sýndar af 8mm spólum sem eru ýmsum tæknilegum takmörkunum háðar, og voru myndirnar því styttar niður í átta mínútna lengd hver og það án samþykkis leikstjóra. Upplifunin af hverri mynd er því dálítið eins og að horfa á afar langa kvikmyndastiklu.

Meðal þeirra mynda sem sýndar verða í þessu sérstaka og stytta formi eru gæðaafurðir á borð við Fists of the Double K, The Hong Kong Connection, Godfathers of Hong Kong, Thunder Kick og Enter the Dragon. Svangir geta mætt galvaskir á svæðið þar sem að pylsa og gos fylgir með í miðaverði sýningarinnar, auk þess sem hægt verður að kaupa popp á staðnum.

Sýningin hefst í Bæjarbíói í Hafnarfirði kl. 21 í kvöld. Fríar sætaferðir fyrir Reykvíkinga sem vilja spara sér bensín verða frá bókabúðinni Iðu í Lækjargötu kl. 20.

-vþ








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.