Tónlist

Tónlistarhátíð fyrir unglinga

Steinar undirbýr þessa dagana tónlistarhátíðina Iceland Music Festival sem verður haldin í september.
Steinar undirbýr þessa dagana tónlistarhátíðina Iceland Music Festival sem verður haldin í september.

Tónlistarhátíðin Iceland Music Festival 2008 verður haldin í fyrsta sinn á Tunglinu um miðjan september. Á meðal þeirra sem koma fram eru Ultra Mega Technobandið Stefán, Sometime, Sesar A, Kicks!, Dabbi T, The Nellies og Dagstraumur.

Maðurinn á bak við hátíðina er hinn sextán ára Steinar Jónsson, framkvæmdastjóri hins nýstofnaða útgáfufyrirtækis MediStream Records. „Mig langaði að halda eitthvað skemmtilegt festival," segir Steinar um hátíðina. „Þeir sem voru í kringum mig vildu geta farið á Iceland Airwaves en þar er átján ára aldurstakmark. Þannig að ég vildi halda þessa hátíð svo krakkar yfir þrettán ára gætu fengið þessa Airwaves-upplifun," segir hann.

 



Technobandið verður á meðal þeirra sem troða upp á tónlistarhátíðinni.

Undirbúningur fyrir hátíðina er í fullum gangi og sér Steinar alfarið um hann sjálfur. Vonast hann til að fimmtán hljómsveitir komi fram á hátíðinni og er helmingurinn þegar búinn að staðfesta komu sína. Leit stendur einnig yfir að fersku elektró-bandi sem fær þann heiður að opna hátíðina og geta áhugasamir sent umsókn á netfangið [email protected].

Hvað varðar MediaStream Records þá er Steinar þegar búinn að semja við Haffa Haff, Sesar A, Daniel Alvin og Dabba T og vonast til að bæta fleiri skjólstæðingum í sarpinn. „Þetta er mjög gaman. Maður er kominn með svolítið aukavald. Ég er búinn að gera hitt og þetta áður og gaf til dæmis út Dabba T-plötuna. Maður er farinn að þekkja allt þetta fólk," segir hann. - fb










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.