Bíó og sjónvarp

Miðnæturbörn á tjaldið

Salman Rushdie vinnur kvikmyndahandrit upp úr skáldsögunni Miðnæturbörn.
Salman Rushdie vinnur kvikmyndahandrit upp úr skáldsögunni Miðnæturbörn.

Þær fregnir berast erlendis frá að skáldsaga Salmans Rushdie, Miðnæturbörn, sem upphaflega kom út árið 1981, verði fljótlega kvikmynduð.

Þetta þykir heyra til nokkurra tíðinda, enda hefur bókin fram að þessu ekki beint þótt henta kvikmyndamiðlinum, enda tekur hún yfir langan tíma og stórt persónugallerí.

Leikstjóri myndarinnar verður Deepa Metha, en hún er einna þekktust fyrir Elements-þríleik sinn sem kafar undir yfirborð ýmissa viðkvæmra málefna sem hrjá indverskt samfélag. Metha og Rushdie hyggjast sameinast um að vinna handrit upp úr skáldsögunni, enda slíkt verkefni varla við hæfi einnar manneskju. Þau gera svo ráð fyrir að hefja tökur á myndinni árið 2010.

Miðnæturbörn var fremur nýlega í fréttum vegna annars máls. Hún varð í sumar fyrir valinu sem besta Booker-verðlaunabók allra tíma, en valið fór fram í tilefni af 40 ára afmæli verðlaunanna. Það þótti því ekki síður fréttnæmt þegar nokkrum mánuðum síðar var tilkynnt um að nýjasta skáldsaga Rushdies, Enchantress of Florence, þótti ekki nægilega góð til þess að hljóta tilnefningu til þessarra sömu verðlauna nú í ár.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.