Bíó og sjónvarp

Gerir mynd um Chavez

Enn ein forsetamyndin er í smíðum hjá leikstjóranum.
Enn ein forsetamyndin er í smíðum hjá leikstjóranum.
Leikstjórinn Oliver Stone er með enn eina forsetamyndina í smíðum. Í þetta sinn hefur Hugo Chavez, forseti Venesúela, orðið fyrir valinu en um heimildarmynd er að ræða sem verður tilbúin á næsta ári.

Vinna við myndina hefur staðið yfir í sex mánuði. „Hún fjallar um Chavez og byltinguna í Suður-Ameríku," sagði Stone. Myndin segir meðal annars frá andstöðunni sem Chavez hefur orðið fyrir í heimalandi sínu og erlendis, sérstaklega frá Bandaríkjastjórn.

Á meðal annarra forseta sem Stone hefur fjallað um í gegnum tíðina eru hinir bandarísku John F. Kennedy, Richard Nixon og George W. Bush.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.