Bíó og sjónvarp

Stuttmyndaveisla í Kringlubíói

Þeir Marteinn Þórsson, Gunnar Björn og Jóhann Ævar þurftu að velja úr fjörutíu stuttmyndum og eru hér ásamt leikstjórum stuttmyndanna fimmtán.
Þeir Marteinn Þórsson, Gunnar Björn og Jóhann Ævar þurftu að velja úr fjörutíu stuttmyndum og eru hér ásamt leikstjórum stuttmyndanna fimmtán.
Blásið verður til mikillar veislu í kvöld í Kringlubíói en þá keppa fimmtán íslenskar stuttmyndir um aðalverðlaun Stuttmyndadaga. Aðstandendur hátíðarinnar kynntu kvöldið í umferðarmiðstöð BSÍ í gær og þar kom fram að yfir fjörutíu stuttmyndir hefðu borist þetta árið. Dómefndin, skipuð þeim Marteini Þórssyni, Gunnari Birni Guðmundssyni og Jóhanni Ævari Grímssyni, hafði því úr nægu að moða þegar kom að því að velja fimmtán stuttmyndir inn í keppnina.

Aðgangur í kvöld er ókeypis og hefst veislan klukkan sjö en verðlaunin verða veitt í lok kvöldsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.