Bíó og sjónvarp

Smáfuglar í forvali

Stuttmynd Rúnars, Smáfuglar, er komin í forval fyrir Óskarsverðlaunin sem verða afhent næsta vor.
Stuttmynd Rúnars, Smáfuglar, er komin í forval fyrir Óskarsverðlaunin sem verða afhent næsta vor.

Stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, Smáfuglar, er komin í forval fyrir Óskarsverðlaunin sem verða afhent næsta vor. Með því að vinna til verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Melbourne fyrr í sumar fór myndin sjálfkrafa í hóp þeirra sem valið er úr þegar kosnar eru þær fimm myndir sem fá tilnefningu. Fyrsta stuttmynd Rúnars, Síðasti bærinn, hlaut tilnefningu til Óskarsins árið 2006 sem besta stuttmyndin.

Smáfuglar, eða 2 Birds, hefur fengið mjög góðar viðtökur á kvikmyndahátíðum erlendis. Um síðustu helgi var hún sýnd við góðan orðstír á hinni virtu kvikmyndahátíð í Telluride í Colorado auk þess sem hún hlaut tvenn verðlaun á alþjóðlegu stuttmyndahátíðinni Noci sem var haldin á Suður-Ítalíu á dögunum.

Einnig má geta þess að tvær íslenskar kvikmyndir hafa verði valdar til sýninga á kvikmyndahátíðinni í Toronto sem verður haldin 4. til 13. september. Um er að ræða Brúðgumann í leikstjórn Baltasars Kormáks og Sveitabrúðkaup í leikstjórn Valdísar Óskarsdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.