Aron: Stefán Rafn með frábæra innkomu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. október 2009 21:57 Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka. Mynd/Arnþór
Aron Kristjánsson lofaði hinn unga Stefán Rafn Sigurmannsson eftir sigur Hauka á Fram í N1-deild karla í kvöld. Haukar voru með yfirhöndina í hálfleik en leikurinn snerist Fram í hag um miðjan seinni hálfleik. Á rúmlega tíu mínútna kafla var Stefán Rafn eini Haukamaðurinn sem náði að skora og hélt þar með sínum mönnum inn í leiknum. „Stefán Rafn átti frábæra innkomu í vinstra horninu. Bæði var baráttuandi hans í vörninni frábær og hann var svo öryggið uppmálað í færunum sínum," sagði Aron sem sagði einnig að Sigurbergur Sveinsson hafi komið sterkur inn undir lokin. „Beggi var slakur framan af í seinni hálfleik en komst svo vel í gang í lokin. Ég var virkilega ánægður með síðustu tíu mínútur leiksins og að náð að hafa unnið sigur hér í kvöld." Hann sagði varnarleik sinna manna oft hafa verið betri en í kvöld. „Við vorum í vandræðum í vörninni, hvort sem við vorum að spila 3-2-1, 5-1, 6-0 eða að taka einn eða tvo úr umferð. Við vorum alltaf að leita af lausn til að stoppa þá." „En sem betur fer vorum við að spila mjög vel í sókninni. Þetta var leikur þar sem sóknarboltinn var í hávegum hafður hjá báðum liðum en mér fannst Framarar mjög fínir í dag." „Ég vissi líka að þeir myndu mæta dýrvitlausir til leiks hér í kvöld og þessa vegna er ég ánægður með að hafa unnið þennan leik."
Olís-deild karla Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tími fyrir endurheimt Sport Fleiri fréttir Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad Aftur eins marks tap en nú tekur EM við Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Olís-deild karla: FH vann stórsigur í Breiðholti og önnur úrslit Uppgjörið: Haukar - Valur 29-33 | Valur heldur í við toppliðin með sigri gegn Haukum Íslendingaliðin töpuðu bæði Ísland tapaði með minnsta mun Ekki haft tíma til að spá í EM Framarar náðu toppliðunum að stigum Frábær endasprettur hjá Janusi Daða og félögum Viggó öflugur í dramatískum endurkomusigri Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Hollensku stelpurnar í fínu formi fyrir EM „Mér finnst við alveg skítlúkka“ Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Frábær sigur hjá Orra og félögum á móti PSG Kristján lét að sér kveða þegar sigurgangan hélt áfram Súrt kvöld fyrir Íslendingaliðin í Meistaradeildinni „Langstærsti búningasamningur sem HSÍ hefur gert“ Viktor mætir Aroni: „Hann var átrúnaðargoðið mitt“ Landsliðin spila í Adidas næstu árin „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ „Bara svona skítatilfinning“ Kemur liðsfélaga sínum til varnar: „Einn af uppáhaldsgaurunum mínum“ Sjá meira