Lífið

Björgvin klár í risahelgi

Stund milli stríða. Björgvin notaði tækifærið þegar hann fékk smá frí og kíkti á netið á nýju iPad-tölvunni sinni. 
Fréttablaðið/Daníel
Stund milli stríða. Björgvin notaði tækifærið þegar hann fékk smá frí og kíkti á netið á nýju iPad-tölvunni sinni. Fréttablaðið/Daníel

Björgvin Halldórsson býður upp á sannkallað jólalagahlaðborð í Laugardalshöllinni þegar einvalalið jólagesta hans treður upp á fernum tónleikum. Búist er við tólf þúsund gestum.

„Mér líst ofsalega vel á þetta og það er í raun ótrúlegt að þetta skuli vera í dag," segir Björgvin Halldórsson. Eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni ríkir hálfgert jólatónleikaæði hjá íslensku þjóðinni. Um tólf þúsund gestir leggja leið sína í Laugardalinn um helgina og hlýða á Björgvin syngja jólalög ásamt valinkunnum gestum á borð við Paul Potts, Alexander Rybak, Jóhönnu Guðrúnu, Helga Björns og Kristján Jóhannsson.



Stór hópur Gríðarlega stór hópur listamanna kemur að tónleikunum um helgina, strengjasveit, gospelkór, hrynsveit og barnakór.
Fjórir tónleikar alls og svo Akureyri um næstu helgi.

Sjálfur segist Björgvin vera í flottu formi og raunar alveg furðu rólegur og afslappaður þótt hann syngi í flestum lögunum.

„Við erum náttúrlega í skýjunum yfir móttökunum og þessi mikli áhugi setur pressu á okkur. Mér finnst við vera með skothelt prógramm, sem er ekkert skrýtið með þetta lið á bak við okkur," útskýrir Björgvin og telur upp strengjasveitina undir stjórn Rolands Hartwell, hrynsveitina sem Þórir Baldursson stýrir, gospelkór Óskars Einarssonar, barnakór Kársnesskóla sem Þórunn Björnsdóttir heldur utan um og svo alla íslensku söngvarana sem stíga á stokk.



Leikstjórinn Gunni Helga stýrir Björgvini á sviðinu.

Í fyrsta skipti var brugðið á það ráð að ráða leikstjóra fyrir sýninguna, enda að mörgu að huga þegar jafnstór sýning er annars vegar. Gunnari Helgasyni var falið það vandasama verkefni og segir Björgvin hann lýsa sjálfum sér sem umferðarstjóra.

„Kynnir með mér fyrir sunnan er síðan Örn Árnason en fyrir norðan verður það Margrét Blöndal," segir Björgvin, sem vonast til að allir gestir helgarinnar fari heim með smá jólaanda í brjósti sér.

[email protected]








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.