Bíó og sjónvarp

Of uppteknir fyrir Arrested Development

David Cross telur ólíklegt að kvikmynd byggð á þáttunum Arrested Development verði að veruleika. Nordicphotos/getty
David Cross telur ólíklegt að kvikmynd byggð á þáttunum Arrested Development verði að veruleika. Nordicphotos/getty
Leikarinn David Cross, sem fer með hlutverk Tobiasar Funke í gamanþáttunum Arrested Development, segir að hugmyndin um að gera kvikmynd eftir þáttunum muni ekki líta dagsins ljós.

„Ég held ég verði að segja ykkur að það mun ekki gerast. Það er ekki opinbert en ég held bara að þetta verði ekki að raunveruleika. Það eru svo margir leikarar í þáttunum sem eru að sinna sínu þessa stundina, hver í sínu horni. Ég er viss um að ég tala fyrir hönd allra þegar ég segi að ég vona að kvikmyndin verði gerð einn daginn, við mundum gjarnan vilja taka slíkt verkefni að okkur, en ég bara held að sú verði ekki raunin," sagði leikarinn um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.