Lífið

Lög til heiðurs sauðkindinni

Saxófónleikarinn hefur sent frá sér sína fimmtu sólóplötu, Horn.
Saxófónleikarinn hefur sent frá sér sína fimmtu sólóplötu, Horn.

Jóel Pálsson segir það á við sjö háskólagráður að reka sprotafyrirtæki á borð við Farmers Market. Hann var að gefa út fimmtu sólóplötu sína og segir viðskiptin og tónlistina passa ágætlega saman.

Saxófónleikarinn Jóel Pálsson hefur sent frá sér fimmtu sólóplötu sína, Horn. Platan er sjálfstætt framhald síðustu plötu Jóels, Varp, sem var valin ein af plötum ársins af bandaríska tímaritinu All About Jazz auk þess að hljóta Íslensku tónlistarverðlaunin í flokknum Jazzplata ársins.

Síðan Varp kom út fyrir fjórum árum hefur Jóel haft í nógu að snúast.

„Ég er búinn að vera að sýsla við ansi margt. Ég hef spilað úti um allar trissur með hinum og þessum. Svo hef ég verið að koma á legg sprotafyrirtæki sem hefur undið mikið upp á sig. Það hefur tekið töluverðan tíma og orku," segir Jóel og á þar við fatalínuna Farmers Market.

„Það hefur verið svakalega skemmtilegt og það er á við sjö háskólagráður að standa í slíku."

Spurður hvernig viðskiptin fari saman við tónlistina segir Jóel: „Maður getur svolítið stjórnað því sjálfur. Ég var búinn að vera algjörlega í músíkinni í tíu ár áður en ég fór að gera þetta. Ég var orðinn þyrstur í að læra eitthvað nýtt."

Platan Horn er sannkallaður suðupottur þar sem ægir saman áhrifum úr ýmsum áttum, svo sem fönki, pönki, frjálsdjassi, svingi, rokki og kirkjumúsík. Auk Jóels spila á plötunni Davíð Þór Jónsson, Einar Scheving, Eyþór Gunnarsson og Ari Bragi Kárason. Tvö lög, Tog og Þel, eru til heiðurs íslensku sauðkindinni en ullin af henni hefur verið notuð mikið hjá Farmers Market.

„Mér finnst hún alveg eiga það inni hjá okkur," segir Jóel. Útgáfutónleikar vegna nýju plötunnar verða haldnir 12. desember á Café Rosenberg.

[email protected]












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.