Viðskipti innlent

Saga Nordic Partners öll

Skilanefnd Landsbankans hefur eignast allar eignir Nordic Partners í Eystrasaltsríkjunum.
Skilanefnd Landsbankans hefur eignast allar eignir Nordic Partners í Eystrasaltsríkjunum.

Skilanefnd Landsbankans leysti á þriðjudag til sín allar eignir fjárfestingarfélagsins Nordic Partners í Lettlandi og er við það að taka eignir yfir í Danmörku og einkaþotuleigu í Bretlandi. Tilkynnt var um yfirtökuna í gær. Nýtt félag hefur verið reist á rústunum. Fjárfestar frá Lettlandi keyptu 51 prósent í nýju félagi af skilanefnd, sem á afganginn.

„Lánahagsmunir bankans eru mjög vel tryggðir með veði í öllum eignum,“ segir Friðrik Jóhannsson, sem unnið hefur að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins.

Nordic Partners var hugarfóstur fjármálahagfræðingsins Gísla Þórs Reynissonar, sem stofnaði félagið upp úr kaupum á plastverksmiðju í Lettlandi í einkavæðingarferli stjórnvalda þar í kringum 1996. Verksmiðjunni var breytt í iðngarða. Þeim fjölgaði í kjölfarið og urðu mest átta.

Umfang Nordic Partners óx mikið eftir þetta, svo sem með kaupum á þjóðþekktum matvælafyrirtækjum í Lettlandi, Litháen og Póllandi auk lóðaeigna. Þá er ótalinn smárekstur hér og í Færeyjum, stofnun einkaþotuleigunnar IceJet árið 2006 og kaup á danskri hótelkeðju, sem meðal annars átti danska glæsi­hótelið D‘Angleterre.

Nordic Partners greiddi 1,1 milljarð danskra króna fyrir hótelin, jafnvirði um tólf milljarða íslenskra króna á þávirði. Þetta var talsvert yfir uppsettu verði. Svipuðu máli mun gegna um fleiri eignir félagsins.

Gísli, sem lést langt fyrir aldur fram í fyrravor, sagði í Fréttablaðinu í lok árs 2007 að virði eignasafns Nordic Partners væri nálægt hundrað milljörðum króna og skuldsetningu lága.

Heimildir Fréttablaðsins herma hins vegar að viðskiptamódel Nordic Partners hafi verið tætingslegt og rímað illa saman. Landsbankinn virðist ekki hafa litið málið sömu augum, enda nær eini lánardrottinn Nordic Partners. Eftir því sem næst verður komist námu heildarskuldir félagsins níutíu milljörðum króna áður en bankinn tók félagið yfir.

Ljóst er að bankinn mun tapa tugum milljarða króna. Skilanefndin segir að haldið verði í eignir þar til markaðs­aðstæður batni. Samkvæmt heimild­um Fréttablaðsins gæti liðið hátt í áratugur þar til bankinn sleppir hend­inni af félaginu.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×