Tónlist

Vel heppnað kokkteilboð Útón í LA

Lanette Pillips ásamt Safta Jaffrey sem uppgötvaði hljómsveitina Muse og rekur umboðsskrifstofu fyrir upptökustjóra.
Lanette Pillips ásamt Safta Jaffrey sem uppgötvaði hljómsveitina Muse og rekur umboðsskrifstofu fyrir upptökustjóra.

Um 170 manns mættu í kokkteilboð sem Útón hélt í Los Angeles til að kynna íslenska tónlist fyrir Bandaríkjamönnum. Emilíana Torrini söng þar fimm lög við góðar undirtektir.

Boðið var haldið á heimili Lanette Phillips, sem er einn virtasti framleiðandi tónlistarmyndbanda í heiminum. Tilgangurinn var að kynna íslenska tónlist fyrir þeim sem koma tónlist að í kvikmyndum, auglýsingum og sjónvarpsþáttum í Bandaríkjunum.

Mætingin í boðið var enn betri en í fyrra þegar það var haldið í fyrsta sinn. Þá var Jónsi í Sigur Rós hálfgerður fulltrúi íslenskrar tónlistar á svæðinu en í þetta sinn var það Emilíana Torrini og stóð hún sig með miklum sóma.

Á meðal erlendra gesta var Eric Grunbaum, sem er yfirmaður Media Arts Lab, fyrirtækis sem býr til allar auglýsingar fyrir Apple. Einnig var þar Dilly Gent sem framleiddi Live Earth-verkefnið sem Al Gore stóð fyrir. Að auki hefur hún unnið með hljómsveitinni Radiohead við myndbandagerð. [email protected]








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.