Lífið

Konur stjórna 13 bræðrum

Dansverkið Bræður verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn 27. maí. Gunnlaugur fer með eitt af helstu hlutverkunum.
Dansverkið Bræður verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn 27. maí. Gunnlaugur fer með eitt af helstu hlutverkunum. Fréttablaðið/Valli

Dansverkið Bræður verður sýnt á Listahátíð í Reykjavík dagana 27. og 28. maí. Gunnlaugur Egilsson fer með hlutverk eins bræðranna og hlakkar mikið til sýninganna.

Æfingar fyrir Bræður hófust fyrir tveimur mánuðum en undanfarinn mánuð hafa þær orðið þéttari.

Höfundar verksins, sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á fimmtudaginn, eru fimm konur en karlmenn eru í helstu hlutverkum. Helstu höfundar eru þær Ástrós Gunnarsdóttir, Lára Stefánsdóttir og Hrafnhildur Hagalín. Þær sömdu einmitt dansverkið Systur, sem var sýnt við góðan orðstír í Iðnó og Leikfélagi Akureyrar.

„Þetta er skemmtileg upplifun. Það eru bara konur í listrænni stjórnun, sem er nýtt fyrir mig. Ég hef aldrei upplifað það áður í þessum karllæga heimi," segir Gunnlaugur, sem er dansari við Konunglega ballettinn í Stokkhólmi.

„Þetta verk er skemmtileg nálgun á því hvernig konur upplifa karlmenn."

Alls taka þrettán karlmenn þátt í sýningunni, þar á meðal Jorma Uotinen frá Finnlandi og Vinicius frá Brasilíu.

„Þeir komu fyrir nokkrum dögum og það hefur verið svolítil vinna að koma þeim inn í þetta en þetta er allt að gerast," segir Gunnlaugur. Nokkrir drengir úr Listdansskóla Íslands eru einnig á meðal þátttakenda.

„Mér finnst viss hluti af þessu dansverki vera svolítill óður til klámkynslóðarinnar. Þetta er kannski sýn þessara drengja á hvernig karlar eiga að vera," segir Gunnlaugur.

Tvær konur taka einnig þátt í sýningunni, eða höfundarnir Ástrós og Lára. Filippía Elísdóttir hannar útlit og búninga í verkinu og Ragnhildur Gísladóttir semur tónlist og hljóðmynd.

Gunnlaugur fer aftur til Svíþjóðar í ágúst eftir að hafa verið í leyfi frá Konunglega ballettinum.

„Það er búið að vera fínt að vera á Íslandi í smá stund og taka þátt í þessu verkefni," segir hann.

[email protected]










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.