Lífið

Skrímslin eru komin á land

Á þurru landi Transaquania – Into Thin Air er annað verkið sem Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet og Gabríela Friðriksdóttir semja um goðsagnakenndan heim kynjavera Bláa lónsins.mynd/Golli
Á þurru landi Transaquania – Into Thin Air er annað verkið sem Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet og Gabríela Friðriksdóttir semja um goðsagnakenndan heim kynjavera Bláa lónsins.mynd/Golli

Íslenski dansflokkurinn frumsýnir í kvöld sýninguna Transaquania - Into Thin Air. Verkið varð til í samvinnu Ernu Ómarsdóttur, Damiens Jalets og Gabríelu Friðriksdóttur. Erna Ómarsdóttir segir verkið eins konar þróunarsögu.

„Transaquania - Into Thin Air er framhald af verkinu Transaquania - Into the Blue sem við settum upp í fyrra í Bláa lóninu. Í því verki bjuggum við til goðsagnakenndan heim og sögðum frá skrímslum og verum í lóninu. Núna eru þær komnar upp á þurrt land.

Minningin um vatn er enn til staðar en vatnið er horfið. Því fannst okkur áhugavert að vinna með þyngdarafl og súrefni í framhaldi af fyrra verkinu, meira meðvitað en maður gerir vanalega. Því lögmálin ofanjarðar eru auðvitað allt önnur en í vatni," segir Erna Ómarsdóttir danshöfundur og dansari.

Sagan sem er sögð í verkinu er ævintýraleg og hún kannar „hið viðkvæma jafnvægi og hinn þunna þráð milli hins efnislæga, hins líkamlega og hins ljóðræna," eins og segir í fréttatilkynningu dansflokkksins.

„Þetta er í raun ævintýri sem fjallar um ættbálk sem er stanslaust að aðlaga sig umhverfinu og stökkbreytist í sífellu. Þannig er aðlögunarhæfni eitt umfjöllunarefnanna. Verurnar berjast við náttúruöflin og upplifa fimm til sex hamfarir á dag," segir Erna og bætir við að legið hafi ljóst fyrir frá því í fyrra að framhald yrði á sögunni um verurnar í lóninu.

Erna er höfundur verksins ásamt Damien Jalet dansara og danshöfundi og Gabríelu Friðriksdóttur myndlistarmanni. Hún segir þau þrjú hafa unnið hugmyndina og söguna saman, þau Damien sjái svo um að færa hana yfir í dansinn en Gabríela í búninga og leikmuni. Ásamt Gabríelu sér Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir um leikmuni og búninga.

„Við erum samferða í öllu ferðalaginu. Svo má ekki gleyma þætti tónlistarmannanna Bens Frosts og Valdimars Jóhannessonar og þá ekki síðu dansaranna sem taka virkan þátt í sköpuninni."

Sýningarár Íslenska dansflokksins hefst á sýningunni Trans­aquania - Into Thin Air og verður verkið sýnt á stóra sviði Borgarleikhússins.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.