Lífið

Hópurinn hans Balta

Diego Luna.
Diego Luna.

Baltasar Kormákur heldur utan til Hollywood í næsta mánuði þegar tökur á Contraband hefjast í New Orleans. Hundrað manna tökulið verður að störfum í rúma tvo mánuði og varla verður þverfótað fyrir stjörnum.

Contraband er án nokkurs vafa eitt stærsta verkefni sem íslenskur kvikmyndaleikstjóri hefur tekið að sér. Talið er fjárhags­áætlunin hljóði upp á 30 milljónir dollara eða 3,5 milljarða íslenskra króna. Til samanburðar má nefna að það kostar rúmar 200 milljónir að framleiða íslenska kvikmynd. Myndin er framleidd undir merkjum Universal og Working Title Project en aðalstjarnan, Mark Wahlberg, sýndi myndinni strax áhuga.

Kate Beckinsale.

Þótt Wahlberg hafi yfirleitt verið talin ein af stóru stjörnunum í Hollywood þá gæti árið 2011 reynst honum ansi happadrjúgt því hann er framleiðandi kvikmyndarinnar The Fighter og er tilnefndur til Golden Globe-verðlauna fyrir hana; bæði sem leikari og framleiðandi.

Baltasar hefur einnig klófest mexíkóska leikarann Diego Luna sem lék á móti Sean Penn í hinni margrómuðu Milk og er ein af stærstu kvikmyndastjörnum Mexíkó. Þá hefur einnig verið staðfest að Lucas Haas leiki í myndinni en hann ættu margir að muna eftir sem stráknum í Harrison Ford-tryllinum Witness.

David O'Hara.

Haas hefur verið viðloðandi kvikmyndaborgina og sást síðast í kvikmyndinni Inception sem margir hafa spáð góðu gengi á Óskarsverðlaunahátíðinni. Þá hefur írska hörkutólið David O'Hara einnig samþykkt að leika í myndinni en hann er kannski þekktastur fyrir að leika einn af hrottum Jacks Nicholson í The Departed og slyngan stríðsmann í Mel Gib­son-kvikmyndinni Braveheart.

Þá er rétt að halda því til haga að Giovanni Ribisi leikur hlutverk Jóhannesar Hauks úr upprunalegu myndinni, Caleb Landry Jones er Jörundur Ragnarsson og Ben Foster mun endurtaka leik Ingvars. E Sigurðssonar upp á enska vísu.

Lucas Haas.
Baltasar hefur einnig verið að leggja lokahönd á tæknilegu atriðin og hefur fengið til liðs við sig einn heitasta kvikmyndatökumanninn í bransanum í dag.

Sá heitir Barry Akroyd og var tilnefndur til Óskarsverðlauna í fyrra fyrir kvikmyndatökuna í The Hurt Locker sem var ansi sigursæl á síðustu Óskarshátíð.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.