Lífið

Björgvin Páll Gústavsson: Karen ég elska þig!

Björgvin Páll Gústavsson þú toppar ALLA með þessum skilaboðum til Karenar. Svona á að gera þetta!
Björgvin Páll Gústavsson þú toppar ALLA með þessum skilaboðum til Karenar. Svona á að gera þetta!

„Èg er vanur að gefa minni heittelskuðu einhverja fallega gjöf og dekra við hana á konudaginn en núna er èg staddur í Rússlandi að keppa með liðinu minu Kadetten í Evrópukeppninni," útskýrir Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmaður í handbolta þegar við spyrjum hvernig hann ætlar að gleðja konuna sem hann elskar í dag.

„Èg elska þig ástin mín og gleðilegan konudag!"

„Hún skrapp á meðan til Þýskalands í heimsókn til bróður síns. Þannig að mín gjöf til hennar verður að láta hana vita að ég elska hana á Vísir.is," segir Björgvin.

Eftirfarandi skilaboðum frá kappanum er hér með komið áleiðis til Karenar Einarsdóttur:

„Èg elska þig ástin mín og gleðilegan konudag!"

„Það má þannig segja að hún eigi konudaginn inni þegar við hittumst næst. Verður það eitthvað rómantiskara en þetta?"

„Hún sér þetta líklega áður en ég heyri í henni vegna þess að ég er að spila snemma," segir Björgvin einlægur.

„Við áttum sex og hálfs árs afmæli, síðan við kynntumst, í fyrradag, og vil èg þakka henni fyrir þennan æðislega tíma og fyrir að hafa þolað mig svona lengi."

„Það má þannig segja að hún eigi konudaginn inni þegar við hittumst næst. Verður það eitthvað rómantiskara en þetta?" spyr Björgvin og hlæ[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.