Rúnar Ingi: Erum búnir að vera spila langt undir getu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2010 21:50 Rúnar Ingi Erlingsson.
Njarðvíkingurinn Rúnar Ingi Erlingsson átti góðan leik í kvöld þegar Njarðvík vann 110-94 sigur á Stjörnunni í Garðbæ og sló Garðbæinga út úr 32 liða úrslitum bikarsins. „Þetta var mjög ánægjulegur sigur því við vitum sjálfir að við erum búnir að vera spila langt undir getu í vetur. Við erum búnir að taka okkur saman í andlitinu og þetta er það sem er framundan. „Við erum búnir að tala mikið um það hvernig við ætlum að koma stefndir til leiks. Það er nefnilega búið að vera mikið andleysi hjá okkur," viðurkennir Rúnar. Rúnar var með 15 stig á 24 mínútum í kvöld og stóð sig einig vel í vörninni á móti Justin Shouse sem skoraði aðeins sex stig í fyrstu þremur leikhlutunum. „Ég þarf að spila vel. Ég er kominn í stærra hlutverk og það er sett pressa á mig. Núna ætla ég að reyna að fara að standa undir henni," segir Rúnar. „Ég held að þetta hafi bara snúist um vörn og aftur vörn hjá okkur. Við náðum að halda Justin Shouse mjög vel niðri framan af og við héldum einnig niðri öllum þeirra aukamönnum. Svo komu þeir aðeins til baka í lokin en eins og sést á stigatöflunni voru það bara þrír menn sem skoruðu," sagði Rúnar og hann er bjartsýnn á framhaldið eftir þennan sigur. „Það er alveg bókað að við ætlum að fara að spila svona í vetur. Við erum í þessu af því að við ætlum að vinna þetta," sagði Rúnar að lokum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Fleiri fréttir Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Björgvin aftur í Breiðholtið Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Hefur Ben Simmons náð botninum? Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar „Fannst þeir sýna meiri hörku, sem ég átti erfitt með“ „Auðvitað söknum við okkar besta og reynslumesta manns“ Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir „Eins og þeim finnist ekkert gaman að spila körfubolta“ Mæta sitthvoru ítalska liðinu í leikjunum tveimur „Löngu kominn tími til að fara á EuroBasket“ Ævintýraleg upphafsár Kananna í körfu á Íslandi „Hvernig eigum við að ná á EM ef að landsliðsmenn okkar eru ekki í liðinu?“ Eina félagið án útlendinga: „Þurfum vettvang fyrir unga leikmenn“ „Margir með konur en eru kannski einir í útlöndum“ „Sá sem lak þessu er skíthæll“ Gafst upp á að læra frönskuna Tekst á við lífið á nýjum stað: „Svolítið óstabílt umhverfi“ LeBron James hættur á samfélagsmiðlum Fékk tæknivillu fyrir að horfa á mótherja Gerði betur en Curry, jafnaði NBA met og hermdi eftir Jordan „Þurftu að þora að vera til“ Þjálfaraskipti hjá ÍR og Fjölni í körfunni Stjörnukonur flottar á Hlíðarenda og Þórskonur fögnuðu áfram fyrir norðan Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 90-89 | Spennutryllir Áhrifavaldur til liðs við nýliðana í Vesturbænum Sjá meira