Bíó og sjónvarp

Brosnan hermdi ekki eftir Tony Blair

Brosnan þykir ansi líkur Tony Blair í kvikmyndinni  The Ghost Writer.
Brosnan þykir ansi líkur Tony Blair í kvikmyndinni The Ghost Writer.
Pierce Brosnan segist ekki vera að leika Tony Blair í kvikmynd Romans Polanski, The Ghost Writer. Þetta kemur fram í viðtali við gamla Bond-leikarann í The Scotsman. Brosnan viðurkennir að vissulega séu mikil líkindi með persónu hans í myndinni og fyrrum forsætisráðherra Bretlands. The Ghost Writer segir frá ævisagnaritara, leikinn af Ewan McGregor, sem er falið að skrifa ævisögu forsætisráðherra Bretlands.

Brosnan viðurkennir hins vegar í viðtalinu að honum hafi dottið Blair fyrst í hug þegar hann las handritið. „Líkindin eru vissulega fyrir hendi. Persónan mín er forsætisráðherra hjá verkmannaflokknum sem er sakaður um stríðsglæpi og fyrir að vera of náinn Bandaríkjunum í stríðinu gegn hryðjuverkum," segir Brosnan. Þegar fundum leikstjórans og leikarans bar saman var fyrsta spurning Brosnan; er ég að leika Blair? „Roman vísaði því algjörlega á bug og sagði persónuna vera sjálfstæða," útskýrir Brosnan.

Í viðtalinu ræðir Brosnan einnig um samstarfið við hinn umdeilda Polanski sem er eftirlýstur fyrir naugðun á bandarískri grund.

„Ég veit allt um hans líf en þessi saga var svo ótrúlega heillandi og hann er náttúrlega einstakur kvikmyndagerðarmaður. Ég held að allir viti hvað hafi gengið á í lífi hans en ég hugsaði mig ekki tvisvar um þegar ég tók þetta hlutverk að mér."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.