Lífið

Millilendir á Íslandi til að skemmta og detta í það

hlakkar til Pablo Francisco, sá kokhrausti í miðjunni, kemur fram á Broadway á sunnudaginn.fréttablaðið/vilhelm
hlakkar til Pablo Francisco, sá kokhrausti í miðjunni, kemur fram á Broadway á sunnudaginn.fréttablaðið/vilhelm

Bandaríski grínistinn Pablo Francisco kemur fram á Broadway á sunnudaginn. Francisco hefur tvisvar sinnum skemmt á Íslandi og hlakkar mikið til þess að skemmta í þriðja skipti.

„Þið eruð búin að ganga í gegnum ýmislegt á Íslandi þannig að við ætlum að mæta og skemmta ykkur,“ segir uppistandsgrínistinn Pablo Francisco.

Pablo Francisco kemur fram á Broadway á sunnudaginn. Hann hefur tvisvar áður verið með uppistand á Íslandi við góðar viðtökur landsmanna.

Francisco kemur til landsins að eigin frumkvæði, en hin sænska umboðsskrifstofa grínistans hafði samband við Kristin Bjarnason, sem stendur fyrir uppistandinu. Francisco kemur til landsins frá Danmörku, en hann er búinn að ferðast um Norðurlöndin undanfarið og kemur hér við á leiðinni heim til Bandaríkjanna.

„Ég ætla að koma með tvo góða vini mína, við erum búnir að vera að ferðast saman,“ segir Francisco. „Þetta verður frábær sýning, þið viljið ekki missa af þessu. Hefjið partíið með því að fara á þessa sýningu og farið svo út og missið vitið. Takið einhvern með ykkur; strákar komið með stelpur og stelpur komið með stráka. Þið þurfið ekki að tala saman, þið getið bara dottið í það, slakað á og byrjað partíið.“

Þrjú ár eru síðan Pablo Francisco kom til landsins og hann er afar áhugasamur um afdrif þjóðarinnar. Hann hefur mikinn áhuga á skemmtanalífi landsins og þrátt fyrir tvær heimsóknir á hann enn þá eftir að gera ýmislegt hér.

„Ég þarf að sjá aðeins meira af Íslandi, maturinn er góður og dagurinn er lengri. En hvernig er það, voru þið að fá nýjan forseta? Konu?“

Forsætisráðherra.

„Hvernig er það að virka?“

Öhm. Ég veit það ekki. Alþingi er í algjöru rugli þessa dagana. Ætlarðu að leita að henni? Viltu hitta hana?

„Nei! nei, ég er góður. Hún hlýtur samt að mæta á Broadway.“

Francisco segist ekki vera mikið partíljón á ferðalögum sínum, en var engu að síður þunnur eftir mikið fjör í Danmörku á miðvikudagskvöld. Hann hyggst líka skemmta sér á Íslandi, enda síðasti viðkomustaðurinn í ferðalaginu. „Ísland er í leiðinni heim, þannig að við ætlum að skemmta okkur og slá tvær flugur í einu höggi.“

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.