Eyjastúlkur áfram með fullt hús og hreint mark Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2011 20:18 Berglind Björg Þorvalsdóttir. Mynd/Anton
Nýliðar ÍBV héldu áfram sigurgöngu sinni í Pepsi-deild kvenna með því að vinna 2-0 sigur á hinum nýliðunum í Þrótti. Berglind Björg Þorvalsdóttir skoraði bæði mörkin og hefur því skorað 4 mörk í fyrstu 4 umferðunum á sínu fyrsta tímabili á æskuslóðunum. Eyjaliðið hefur unnið alla fjóra leiki sína í sumar með markatölunni 14-0 og Birna Berg Haraldsdóttir, 17 ára markvörður ÍBV, á enn eftir að fá á sig mark í sumar. Berglind Björg Þorvalsdóttir skoraði mörkin sín á 16. og 49. mínútu leiksins. Berglind Björg er úr Eyjum en hefur spilað með Breiðabliki undanfarin ár. Það er greinilegt að hún kann vel við sig á heimaslóðunum en 3 af 4 marka hennar í sumar hafa komið á Hásteinsvellinum. ÍBV vann 5-0 sigur á Þór/KA og Aftureldingu í fyrstu tveimur umferðunum og fylgdi því síðan eftir með því að vinna 2-0 sigur á Breiðabliki í Kópavogi í síðustu umferð. Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, er að gera frábæra hluti með Eyjaliðið sem mætir næst Stjörnunni í toppslag í Garðabænum. Upplýsingar um markaskorara er fengnar af vefsíðunni fótbolti.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tími fyrir endurheimt Sport Fleiri fréttir FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Sjá meira