Leyndarmál ítalskra húsmæðra: Ítölsk eggjakaka Roald Eyvindsson skrifar 15. febrúar 2011 20:06 Rétturinn kallast La frittata di maccheroni, sem mætti lauslega þýða sem eggjaköku hagsýninnar. Fréttablaðið/Pjetur „
Þetta er best geymda leyndarmál ítalskra húsmæðra, og -feðra, og nokkuð sem allir hagsýnir kokkar ættu að þekkja," segir Jóhanna Guðrún Gunnarsdóttir ítölskukennari um uppskrift að ítalskri eggjaköku gerðri úr afgöngum. Rétturinn er ættaður frá Napólí og kallast á frummálinu La frittata di maccheroni, sem mætti lauslega þýða sem eggjaköku hagsýninnar. Jóhanna skipuleggur námsferðir fyrir Íslendinga til Le Marche héraðsins á Ítalíu í samstarfi við tungumálaskólann Edulingua á sumrin. Uppskriftina lærði hún af heimamönnum og finnst gott að geta gripið í hana enda unnandi ítalskrar matargerðar og hagsýn að eðlisfari. „Ég nota afganga af ýmsu pasta í hagsýniskökuna mína, hvort sem það er penne, vermicelli eða spagettí, enda hendir maður ekki ljúffengum afgangi af góðum pastarétti frá kvöldinu áður, sérstaklega ekki ef aðeins þarf að bæta nokkrum eggjum út í daginn eftir. Ég umbreyti líka stundum penne all'arrabbiata í svona köku, þar sem nóg er af beikoni í þeim pastarétti, sem gerir hana mýkri og matarmeiri en ella og eins er sérlega ljúffengt að nota afgangs risotto," segir Jóhanna, sem kýs að hafa kökuna sem meðlæti eða með smá brauði. „Það er að segja ef bóndinn er ekki búinn að klára," getur hún brosandi og segir námsfúsa svo geta sent póst á [email protected]. Jóhanna segir eggjakökuna nokkuð sem allir hagsýnir kokkar ættu að þekkja. Sælkeraréttur frá Napólí - eggjakaka fyrir tvo Afgangur af pasta (frá kvöldinu áður) 4 egg salt og pipar eftir smekk örlítið af mjólk Parmigiano di Reggiano ostur nokkrar sneiðar af mozzarella Takið afgang af pasta frá kvöldinu áður og setjið í skál. Sláið út í það fjórum eggjum (fer eftir pastamagni), stráið smá salti og pipar yfir og vætið með ögn af mjólk, gætið þó þess að hræringurinn sé ekki blautur. Rífið niður slatta af Parmigiano di Reggiano osti. Hitið olíu á pönnu og skellið hræringnum á pönnuna þegar hún er orðin vel heit. Skellið loki á pönnuna þegar hræran er orðin föst í sér og gyllt í botninn og hvolfið henni af öryggi í lokið. Leggið kökuna öfuga á pönnuna svo hún steikist báðum megin. Bræðið nokkrar sneiðar af mozzarella ofan á. Leyfið köku að kólna og lyfta sér svo auðvelt sé að skera hana í sneiðar. Stráið yfir hana basil, rucola eða steinselju rétt áður en hún er borin fram.
Eggjakaka Kökur og tertur Pastaréttir Uppskriftir Mest lesið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga rifja upp gamla takta í Draumahöllinni Bíó og sjónvarp Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Lífið Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Fleiri fréttir Þetta borðuðu Jói Fel og frú í sex mánuði Sjá meira