Skoðun

Frumvarp

Snæbjörn Ragnarsson skrifar
Ég get ekki orða bundist lengur. Baráttumál kvenna eru í ólestri og ég, sem sanngjarn og vel gefinn karlmaður, segi að nú sé nóg komið. Því set ég hér fram tvær tillögur sem ættu að komast til framkvæmda og myndu, að ég tel, rétta hlut kvenna stórkostlega þegar kemur að því að tryggja þeim það sem þeim ber.

Laun

Hver einasta kona ætti að hafa sama rétt til launa og önnur kona í sambærilegu starfi. Þess vegna legg ég til að mið verði tekið af meðallaunum karla í hverju starfi fyrir sig og allar konur eigi rétt á sanngjörnu hlutfalli af þeirri upphæð. Þannig fái þær 80% af launum karlmanna, að því gefnu að þær séu að öllu leyti jafn hæfar til starfans og þeir. Ekkert óþarfa hringl, slíkt skapar óvissu og kergju.

Ofbeldi

Vitanlega er hættulegt að ætla að skipta sér of mikið af heimilisofbeldi, þar skyldu reglur um friðhelgi einkalífsins ráða för. Hverjum karlmanni á að vera frjálst að misnota konu sína, dætur eða önnur skyldmenni eins og honum finnst sjálfum best. Þegar kemur að óreglulegu ofbeldi gagnvart konum þarf hins vegar skýrari línur. Þannig þarf að tryggja að ein af hverjum þremur konum geti átt von á því að verða fyrir kynferðislegri misnotkun á lífsleiðinni. Þá telst æskilegt að 20% kvenna verði fyrir slíkri reynslu fyrir 18 ára aldur.

Ekki má gleyma að þetta styður hvort við annað því kona sem hefur orðið fyrir slíkri reynslu hefur skert sjálfsmat og er ólíkleg til þess að heimta hærri laun en henni ber.

Það er ósk mín að þetta komist til framkvæmda og að þú, lesandi góður, styðjir við þær aðgerðir. Þetta er eingöngu gert til að tryggja konum það til framtíðar sem þær búa við nú þegar og flest okkar höfum þegar samþykkt, þögn er jú það sama og samþykki.



+++++++++++++++++

Öðlingurinn 2011 er vitundarvakning. Átakið stendur yfir í mánuð, frá bóndadeginum (21. janúar) til konudagsins (20. febrúar).

Markmið þess er að stuðla að opinni umræðu um jafnrétti kynjanna á Íslandi. Nánar á heimasíðu átaksins, odlingurinn.is.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×