Lífið

Pearl Jam býr til plötu

Eddie Vedder og félagar Pearl Jam byrja á sinni tíundu plötu í næsta mánuði.
Eddie Vedder og félagar Pearl Jam byrja á sinni tíundu plötu í næsta mánuði.
Rokkararnir í Pearl Jam byrja í næsta mánuði að taka upp sína tíundu hljóðversplötu. Síðasta plata sveitarinnar, Backspacer, kom út árið 2009.

„Við gerðum fullt af prufuupptökum og við erum með 25 möguleg lög," sagði bassaleikarinn Jeff Ament.

„Við ætlum að hittast í apríl, spila þessi prufulög og ákveða hvaða tólf til fimmtán eru best. Vonandi getum við klárað eitthvað á þessu ári." Eddie Vedder, söngvari Pearl Jam, gefur einnig út sólóplötu í júní. Þar verða lög á borð við Longing To Belong, Satellite og You"re True.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.