Lífið

Ekki veikan blett að finna

Upptökum á fjórðu plötu Geirs Ólafssonar lauk fyrir skömmu í Kaliforníu. 22 hljóðfæraleikarar komu við sögu og stóðu upptökur yfir í þrjá og hálfan tíma.

„Með Guðs hjálp eru manni allir vegir færir,“ segir söngvarinn Geir Ólafsson. Hann er nýkominn heim frá Palm Springs í Kaliforníu þar sem upptökur fóru fram á fjórðu sólóplötu hans.

Alls léku 22 hljóðfæraleikarar inn á plötuna undir stjórn Teds Herman og tók upptakan ekki nema þrjár og hálfa klukkustund. Herman og félagar hafa unnið með mörgum frægum á ferli sínum, þar á með Frank Sinatra, Louis Armstrong og Dean Martin. „Það er ekki veikan blett að finna í þessu bandi. Þeir hafa gríðarlega reynslu og þetta er rosalega flott sánd sem þeir hafa upp á að bjóða,“ segir Geir, sem dvaldi úti í eina viku. „Það er svakalegur skóli og mikill heiður að fá að gera þetta. Það er ekki á hverjum degi sem menn fá að taka upp með bigbandi í Bandaríkjunum. Þeir hafa trú á því sem ég er að gera og það er frábært að hafa fengið þetta tækifæri.“

Það var í gegnum kynni sín af Don Randi, fyrrverandi píanista Franks Sinatra, sem Geir fékk tækifærið til að búa til plötuna og kann hann Randi bestu þakkir fyrir hjálpsemina.

Á meðal laga á plötunni eru Just a Gigolo, Sunny, Mambo Italiano og Copacabana. Söngur Geirs verður tekinn upp hér heima og mun Vilhjálmur Guðjónsson stjórna upptökunni.

Plötunni verður dreift í haust víðs vegar um Kaliforníu og hér heima.

Geir ætlar að kynna plötuna bæði hér heima og í Bandaríkjunum og býst við því að stórsveit Hermans verði honum til halds og trausts. [email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.