Viðskipti erlent

Atvinnuleysi og lítill hagvöxtur í Bandaríkjunum

Ben Bernanke seðlabankastjóri sagðist á blaðamannafundi í fyrradag ætla að gera allt hvað hann geti til að koma efnahagslífi Bandaríkjanna á réttan kjöl. Þar á meðal að halda vaxtastigi lágu. Fréttablaðið/AP
Ben Bernanke seðlabankastjóri sagðist á blaðamannafundi í fyrradag ætla að gera allt hvað hann geti til að koma efnahagslífi Bandaríkjanna á réttan kjöl. Þar á meðal að halda vaxtastigi lágu. Fréttablaðið/AP
Hagvöxtur mældist 1,8 prósent í Bandaríkjunum á ársgrundvelli á fyrstu þremur mánuðum ársins, samkvæmt upplýsingum viðskiptaráðuneytisins þar í landi.

Þetta er verulegur samdráttur á milli ársfjórðunga en hagkerfið óx um 3,1 prósent á síðasta ársfjórðungi í fyrra. Ekki bætti úr skák að atvinnuleysi jókst vestanhafs í þarsíðustu viku. Þessi afturkippur í efnahagslífinu þykir draga úr væntingum um viðspyrnu efnahagslífsins eftir fjármálakreppuna.

Hagtölurnar vestra eru nokkuð undir væntingum en samkvæmt meðalspá Reuters var almennt reiknað með 2,0 prósenta hagvexti á fjórðungnum. Þá hljóðaði hagspá bandaríska seðlabankans upp á 3,4 til 3,9 prósenta hagvöxt á árinu öllu.

Ben Bernanke seðlabankastjóri sagði á blaðamannafundi fyrir helgi að bankastjórnin myndi leggja lóð sitt á vogarskálarnar til að koma efnahagslífinu í gang, þar á meðal að halda stýrivöxtum lágum.

Eftir birtingu upplýsinganna í gær birti seðlabankinn endurskoðaða hagspá þar sem væntingar um hagvöxt voru dregnar niður í 3,1 til 3,3 prósent. Rökin fyrir endurskoðuninni voru veikur bati efnahagslífsins og almennar verðhækkanir sem hafi keyrt upp verðbólgu.

Breska ríkisútvarpið, BBC, segir hækkun á raforkuverði ekki óeðlilega nú um stundir enda kaldur vetur að baki. Reuters-fréttastofan bætir við að veðurfarið hafi hamlað framkvæmdum utandyra. Við þá þróun hafi bæst snörp hækkun á eldsneyti og matvælum, ekki síst korni og hveiti, sem kom illa við buddu neytenda og olli því að þeir héldu að sér höndum í byrjun árs. [email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×