Lífið

Æskuvinirnir frá Kaliforníu

Gríngengið Lonely Island getur ekki birt myndband á Youtube án þess að milljónir manna horfi á það. Ný plata er á leiðinni frá genginu og á meðal gesta eru Justin Timberlake og sjálfur Michael Bolton.

Gríngengið Lonely Island sendir frá sér aðra breiðskífu sína seinna í maí. Platan heitir Turtleneck and Chain og fylgir eftir Incredibad sem kom út árið 2009. Lonely Island gengið samanstendur af æskuvinunum Akiva Schaffer, Jorma Taccone og Andy Samberg, en þeir byrjuðu að semja grínlög og framleiða myndbönd í grunnskóla í Kaliforníu. Þeir reyndu að koma sér á framfæri á ýmsan hátt þangað til Lorne Michaels, skapari skemmtiþáttanna Saturday Night Live, tók eftir því sem þeir voru að gera og bauð þeim starf í þætti sínum.

Saman sömdu þeir svo grínlagið Lazy Sunday, myndbandið var sýnt í Saturday Night Live og sló samstundis í gegn á netinu. Eftir það fylgdu gríðarlega vinsæl myndbönd á borð við Dick in a Box, sem Justin Timberlake flutti ásamt Andy Samberg, Like a Boss, sem skartaði leikaranum Seth Rogen, og Jizz in My Pants en mynbandið við það má sjá hér fyrir ofan.

Justin Timberlake hefur verið duglegur við að starfa með Lonely Island genginu. Hann kemur fram í laginu Motherlover, sem er eflaust elsta lagið á nýju plötunni. Myndbandið við lagið sló rækilega í gegn á netinu, eins og reyndar myndbönd hópsins. Snoop Dogg, Akon, Rihanna, Nicki Minaj, John Waters, Beck og enginn annar en Michael Bolton eru á meðal gesta á nýju plötunni.

Lög Lonely Island eru ekki aðeins fyndin heldur afar grípandi tónlistarlega, en þar hafa þeir mikið á forskot á kollega sína í grínbransanum. Talað er um að það geti reynst erfitt fyrir Lonely Island gengið að toppa fyrri plötuna, en Chris Coplan, blaðamaður vefritsins Consequence of Sound, segir ný lög á borð við hið magnaða I Just Had Sex benda til þess að það eigi helling inni.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.