Lífið

Pirruð yfir langri bið

Kate Bush er pirruð yfir langri bið á milli platna.
Kate Bush er pirruð yfir langri bið á milli platna.
Breska söngkonan Kate Bush er mjög pirruð yfir því hversu langan tíma það tekur hana að gera hverja plötu. Síðasta plata hennar, Aerial, kom út árið 2005. Þar áður gaf hún út The Red Shoes árið 1993.

Í viðtali við BBC segist hún hafa samið slatta af nýjum lögum en vita ekki hvenær þau komi út.

„Það er pirrandi hve plöturnar eru lengi í vinnslu. Ég vildi óska að það væri ekki svona löng bið á milli þeirra," sagði hún og vildi ekki meina að hún væri með fullkomnunaráráttu. Síðar í þessum mánuði kemur út platan Director"s Cut sem hefur að geyma lög af plötunum The Sensual World og The Red Shoes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.