Innlent

Skepnur hafa hrakist í skurði og drukknað

Skepnur hafa ekki drepist í stórum stíl vegna öskufallsins frá Grímsvötnum líkt og bændur óttuðust í fyrstu. Unnið er að því að koma húsdýrum í skjól þar sem því verður við komið og sjá þeim fyrir rennandi vatni og hreinu fóðri.
Fréttablaðið/Vilhelm
Skepnur hafa ekki drepist í stórum stíl vegna öskufallsins frá Grímsvötnum líkt og bændur óttuðust í fyrstu. Unnið er að því að koma húsdýrum í skjól þar sem því verður við komið og sjá þeim fyrir rennandi vatni og hreinu fóðri. Fréttablaðið/Vilhelm
Undir vegg Gunnar Þorkelsson, héraðsdýralæknir Vestur-Skaftafellsumdæmis, bjargaði í gær litlu fuglskríli sem leitað hafði skjóls frá öskurokinu undir þakskegginu hjá honum, en gefist upp og lagt sig á ruslatunnu við húsvegginn.Fréttablaðið/Vilhelm
Dæmi eru um að dýr hafi drepist eftir að hafa hrakist í ógöngur vegna blindu frá gosmekkinum úr Grímsvötnum. Gunnar Þorkelsson, héraðsdýralæknir Vestur-Skaftafellsumdæmis, segir slík dæmi þó ekki mörg og hljóð í bændum á svæðinu ótrúlega gott miðað við aðstæður. Þar hafi hjálpað fyrstu fregnir um að tiltölulega lítið flúor mældist í öskunni, en það getur verið skepnunum hættulegt.

Í gærmorgun hafði öskufall aukist á ný þannig að vart sá á milli húsa á Kirkjubæjarklaustri. Ástandið var svo enn verra þegar austar dró. „Þetta má samt ekki vara mikið lengur. Þá kæmi mér ekki á óvart þótt bændur yrðu að hella niður mjólk í dag." Mjólk var síðast sótt á bæina á föstudag.

Nú segir Gunnar bændur reyna að tryggja dýrum sínum rennandi vatn og fóður. Ekki eru miklar fregnir af felli vegna öskufallsins, þótt vart hafi orðið við einhverjar dauðar skepnur. „En fyrir því geta verið ýmsar orsakir. Það þarf ekki að vera eitthvað í gosefnunum, heldur gæti það til dæmis verið stresstengt," segir Gunnar. Austur á Síðu segir hann vera dæmi um að skepnur hafi hrakist í skurði. „Askan fer í augun og dýrin sjá ekki nokkurn skapaðan hlut frekar en við." Á einum bæ segir hann meri hafa lent ofan í skurði og slasast nokkuð, auk þess sem folald hafi drukknað.

Gunnar segir að þrátt fyrir allt hafi ekki enn verið mikið um hjálparbeiðnir frá bændum, hringt hafi verið úr Mýrdalnum þar sem var veik kýr, en útkall á það svæði verði kollegar á Hvolsvelli eða Hellu að annast. „Í öskufallinu núna er vonlaust að komast þessa leið þangað."

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×