Tíska og hönnun

66° í New York: Allsherjar landkynning

Eins og sjá má af myndunum heppnaðist sýningin prýðilega.
Eins og sjá má af myndunum heppnaðist sýningin prýðilega.
„Viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum, við erum enn í skýjunum yfir þessu öllu saman," segir Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri 66°Norður.

Fyrirtækið efndi á dögunum til tískusýningar í New York þar sem haust- og vetrar­lína fyrirtækisins árið 2011 var sýnd. Fullt var út úr dyrum meðan á tískusýningunni stóð og varð að vísa mörgum frá.

Þetta er í fyrsta sinn sem 66°Norður stendur fyrir tískusýningu af þessu tagi utan landsteinanna.

„Við tjölduðum þarna öllu til, sýndum línuna eins og hún leggur sig, allt frá kuldaúlpum niður í ullarklæðnað," segir Helga og bendir á að undanfarið hafi verið birtast jákvæðar umsagnir um fatalínuna í fjölmiðlum og á tískubloggsíðum ytra.

„Einn tók svo skemmtilega til orða að nú væri loks hægt að taka á móti vetrinum vel búinn og flottur til fara, í hátískufatnaði frá 66°Norður," segir Helga.

Fjöldi blaðamanna lét sjá sig á sýningunni, þar á meðal frá The Huffington Post og tímaritinu W, sem og stjörnur á borð við Josh Strickland úr raunveruleikaþættinum Holly's World, og stórir endursöluaðilar.

Fleira íslenskt var þó á sýningunni en klæðnaður. Boðið var upp á drykki frá Reyka Vodka og mat frá Lava, veitingastað Bláa lónsins og íslenska tónlist.

„Þetta var ekki aðeins verið tískusýning heldur allsherjar landkynning," bendir Helga á og segir stefnt að því að endurtaka leikinn að ári.

[email protected]




















Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.