Lífið

Vestfirskt flæði og grúv

Vestfirska hip hop-sveitin Stjörnuryk hefur gefið út sína fyrstu plötu. Flæðið og grúvið skiptir rapparana höfuðmáli í tónsmíðunum. Hip-hop hljómsveitin Stjörnuryk, sem á rætur að rekja til Ísafjarðar, hefur gefið út sína fyrstu plötu, Þetta reddast.

Stjörnuryk var stofnuð fyrir tveimur árum af röppurunum Geira, Ká eff bé, Gauta og Rattó, sem heita réttu nafni Ásgeir Þór Kristinsson, Kristinn F. Birgisson, Óttar Gnýr Rögnvaldsson og Gautur Ingi Ingimarsson. Þeir byrjuðu reyndar að rappa saman 2002 en tóku góðan tíma í að stofna hljómsveitina. Síðan þá hafa þeir tvívegis spilað á hátíðinni Aldrei fór ég suður og á Villta vestrinu á Akranesi. Núna búa þeir á höfuðborgarsvæðinu og tveir þeirra stefna á nám í hljóðblöndun, eða Geiri og Ká eff bé.

Strákarnir eru fæddir 1982 og 1985 og kominn tími á plötu að þeirra mati. „Við erum orðnir svolítið gamlir. Við urðum eiginlega að gefa þetta út strax. Við vildum vera búnir að gera eitthvað fyrir þrítugt," segir Geiri, sem tók einnig upp plötuna.

Aðspurður segir hann að þeir rappi um allt sem þeim dettur í hug. „Við erum aðallega að leika okkur með flæðið. Textinn er ekkert alltaf aðalmálið en það eru nokkur lög þar sem við spáum meira í textanum," segir hann. „Þetta snýst um að búa til gott grúv."

Mikið er um gestagang á plötunni og má þá nefna þá bræður Erp og Eyjólf Eyvindarsyni (Blaz Roca og Sesar A) sem syngja með Stjörnuryki lagið Westfirzka mafían. Einnig koma fram á plötunni þeir Ástþór Óðinn, Þóra Ingimars, Ramses og hinn kornungi rappari MC Ísaksen.

Útgáfutónleikar vegna plötunnar verða á Prikinu á föstudagskvöld.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.