Tónlist

Rapprisar sameina kraftana

Rappararnir Jay-Z og Kanye West gefa út plötuna Watch the Throne í næsta mánuði.
Rappararnir Jay-Z og Kanye West gefa út plötuna Watch the Throne í næsta mánuði. nordicphotos/getty
Rappararnir Jay-Z og Kanye West hafa sameinað krafta sína og gefa út plötuna Watch the Throne innan skamms. Tónlistarunnendur bíða spenntir eftir útkomunni.

Rappararnir Jay-Z og Kanye West gefa út plötuna Watch the Throne á iTunes 8. ágúst. Fjórum dögum síðar kemur hún í plötubúðir í föstu formi. Tónlistaráhugamenn um heim allan hafa beðið spenntir eftir útgáfunni enda Jay-Z og Kanye sannkallaðir rapprisar sem standa á hátindi frægðar sinnar um þessar mundir.

Samstarfið kemur í sjálfu sér ekki á óvart. Ferill þeirra beggja hefur alla tíð verið samtvinnaður og til að byrja með var Kanye hálfgerður lærlingur hjá Jay-Z. Kanye steig fram á sjónarsviðið sem upptökustjóri hjá Roc-A-Fella Records, þar sem Jay-Z er einn eigenda. Þar vakti hann athygli fyrir vinnu sína við The Blueprint, sjöttu hljóðversplötu Jay-Z. Kanye varð í framhaldinu eftirsóttur upptökustjóri en hélt þó áfram að starfa fyrir Jay-Z og tók upp fjögur lög á næstu plötu hans, auk þess að syngja í einu lagi.

Kanye ákvað að hefja eigin rappferil og gaf út sína fyrstu plötu, The College Dropout, hjá Roc-A-Fella Records og síðan þá hafa allar plötur hans komið þar út. Jay-Z var einn af gestasöngvurum á The College Dropout, rétt eins og á næstu plötu Kanye, Late Registration, og á þeirri nýjustu, My Beautiful Dark Twisted Fantasy. Á móti var Kanye gestasöngvari í tveimur lögum á síðustu plötu Jay-Z, The Blueprint 3, og einn af upptökustjórunum.

Fyrstu fregnir af samstarfi þeirra félaga bárust í október í fyrra og mánuði síðar hófust upptökur í borginni Bath á Englandi.Upphaflega átti Watch the Trone að vera fimm laga EP-plata en upptökurnar gengu svo vel að ákveðið var að gera heilt albúm.

Í janúar kom út fyrsta lagið, H.A.M., sem er eitt af fjórum aukalögum á viðhafnarútgáfu plötunnar. Beyoncé, eiginkona Jay-Z, syngur í laginu Lift Off og í smáskífulaginu Otis rappa félagarnir ofan í lag hins sáluga Otis Redding, Try a Little Tenderness. Fjölmargir lagahöfundar veittu þeim hjálparhönd á plötunni, þar á meðal Pharrell Williams, gamli refurinn Quincy Jones og Justin Veron, forsprakki Bon Iver, sem kom einmitt við sögu á My Beautiful Dark Twisted Fantasy.

Jay-Z og Kanye ætla í stóra tónleikaferð um Norður-Ameríku til að kynna plötuna og hefst hún 22. september í Detroit.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.