Skoðun

Kerfið er ekki að virka

Velferðarkerfið er hornsteinn samfélagsins sem hefur gert öllum kleift, óháð efnahag og aðstæðum, að njóta sama réttar til þjónustu. Verulega er vegið að velferðarkerfinu í því fjárlagafrumvarpi sem ríkisstjórn Íslands hefur nú lagt fyrir Alþingi og lýsir BSRB þungum áhyggjum yfir því.

BSRB óttast að Fæðingarorlofssjóður og það fæðingarorlofskerfi sem byggt hefur verið upp á Íslandi sé í hættu. Bent er á að sífellt færri foreldrar hafa nýtt rétt sinn til fæðingarorlofs síðustu ár þar sem greiðslur úr sjóðnum hafa verið skertar til muna.

Greiðsluþak sjóðsins er nú orðið svo lágt að fleiri og fleiri foreldrar, sér í lagi feður, telja sig ekki hafa efni á að taka fæðingarorlof. Aðrir forðast að taka fæðingarorlof af ótta við viðbrögð vinnuveitanda sinna og slíkt ástand er óásættanlegt.

Forsætisráðherra lýsti nýverið vilja sínum til að lengja fæðingarorlofið og hækka greiðsluþak á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði en sagði það ekki raunhæft fyrr en að nokkrum árum liðnum. Slíkar breytingar yrðu vissulega framfaraskref en óhjákvæmilegt er að benda á það óréttlæti sem börn, er fæðast þangað til breytingarnar komast á, verða fyrir. Á meðan foreldrar eru að neita sér um fæðingarorlof vegna fjárhagsástæðna eða af ótta við að missa vinnuna í kjölfarið er kerfið ekki að virka. Stjórnvöld verða að tryggja að kerfið virki eins og því er ætlað og tryggja þannig rétt barna til samvista við báða foreldra líkt og markmiðið var með setningu fæðingar- og foreldraorlofslaga.

Síðustu ár hefur öflugt séreignarlífeyriskerfi verið byggt upp á Íslandi. Nú er höggvið að rótum þess með tillögum að skattlagningu á inngreiðslum yfir 2% í séreignarlífeyrissjóði. Fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar opna á þann möguleika að tvískatta hluta af séreignarlífeyrissparnaði fólks og telur BSRB fullvíst að slíkar aðgerðir séu upphafið að endalokum séreignarlífeyriskerfisins.

Bandalagið leggst alfarið gegn breytingum á séreignarlífeyriskerfinu og óttast jafnframt að þessar aðgerðir gætu verið fyrsta skrefið í átt að almennri skattlagningu inngreiðslna í lífeyrissjóði sem myndu á endanum rýra kjör lífeyrisþega til mikilla muna. BSRB vonast til að stjórnvöld leiðrétti þau mistök sem greinilega áttu sér stað við gerð fjárlagafrumvarpsins áður en það verður endanlega afgreitt sem lög frá Alþingi.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×