Tíska og hönnun

Flökraði við þæfðri ull

Auður Karitas Ásgeirsdóttir.
Auður Karitas Ásgeirsdóttir. Fréttablaðið/Stefán
Auður Karitas Ásgeirsdóttir, fatahönnuður og stílisti hjá ljósmyndastúdíóinu Magg, var ekkert hrifin af ull sem hráefni þegar hún var við nám. Gömul Álafossflík breytti því þó og nú er hún höfundurinn á bak við ullarflíkurnar í Geysi á Skólavörðustíg.

„Ef ég heyrði „þæfð ull“ varð mér flökurt,“ segir hún og hlær. „Svo sá ég ótrúlega eitís prjónaflík á útsölurekka hjá Álafossi sem var svo falleg og þá kviknaði ljós í kollinum á mér að gera 2010-útgáfu af henni,“ segir Auður, sem lagðist í framhaldinu yfir íslenska menningararfinn í hugmyndavinnu.

„Ég skoðaði mikið gamlar ljósmyndabækur, gömul íslensk frímerki og vefnað og heimsótti líka byggðasöfn. Flíkurnar eru framleiddar hér á landi hjá Glófa og þar hafa menn mikla þolinmæði gagnvart mér þegar ég er að breyta munstrum og litum. Íslenska ullin er svolítið gróf en voðirnar eru meðhöndlaðar, ýfðar upp á báðum hliðum og mýktar,“ segir hún og virðist alveg hafa tekið ullina í sátt. Spurð hvort hún eigi sér uppáhaldsflík segir hún slána Auði í uppáhaldi.

„Það er fyrsta sláin sem ég gerði. Mér þykir alltaf vænt um hana en hún var upphafið að þessu spennandi verkefni.“

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.