Tónlist

Listin að koma íslenskri tónlist inn hjá iTunes, Amazon og Spotify

Of Monsters and Men áttu eina vinsælustu plötuna á iTunes nú í vor.
Of Monsters and Men áttu eina vinsælustu plötuna á iTunes nú í vor.
Stafræn dreifing verður aðalumræðuefni fræðslukvölds ÚTÓN, útflutningsmiðstöð íslenskrar tónlistar, sem fer fram í Norræna húsinu í kvöld.

Þar verður leitast við að svara því hvernig tónlistarmenn geta komið tónlist sinni að hjá iTunes, Amazon og fleiri netveitum sem selja tónlist. Einnig á streymiþjónustur á borð við Spotify, sem hefur hvorki meira né minna en 10 milljón notendur.

Þá verður farið yfir það hvernig tónlistarmenn fá greitt frá erlendum netveitum og streymiþjónustum og fleiri þjónustur sem standa í boði til að dreifa tónlistinni á netinu.

Á meðal fyrirlesara verður Trond Tornes markaðsstjóri Phonofile. Hann ætlar að kynna þjónustu Phonofile, sem sinnir sama hlutverki og þjónustur á borð við Orchard, Believer, AWAL, Finetunes og Tunecore, og aðra möguleika sem tónlistarmenn hafa til að dreifa tónlist. Þá mun Daddi Guðbergsson kynna þjónustu Grapewire.net. Ólafur Arnaldsson tónlistarmaður tekur einnig þátt í umræðu um þetta áhugaverða efni.

Dagskrá hefst klukkan 19. 30 í Norræna húsinu. Nánari upplýsingar veitir Tómas Young, [email protected].






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.