Lætur ekkert stoppa sig þegar Kiss er annars vegar 18. febrúar 2012 12:30 Þráinn Árni Baldvinsson heldur á þremur útgáfum af sömu Kiss-plötunni, nema hvað að ein er frá Argentínu, önnur frá Ástralíu og sú þriðja frá Þýskalandi. fréttablaðið/stefán
Þráinn Árni Baldvinsson, gítarleikari Skálmaldar, er með sérstakt rokkherbergi heima hjá sér. Þar fær árátta hans tengd hljómsveitinni Kiss að njóta sín. Heimili Þráinn Árni Baldvinsson, gítarleikari Skálmaldar, nýtur þeirra forréttinda að vera með rokkherbergi heima hjá sér. Í því eru geisladiskar, vínylplötur og alls kyns munir tengdir uppáhaldshljómsveitum hans Kiss, Iron Maiden og Metallica en aðallega þó Kiss. „Við flytjum inn í þessa íbúð 2007. Ég var með svo mikið dót sem var búið að fylgja mér í gegnum tíðina að konan vissi alveg að hverju hún var að ganga þegar við byrjuðum að hittast nokkrum árum áður,“ segir Þráinn. „Þannig að það var allan tímann á hreinu að þetta yrði herbergi fyrir þetta drasl. Svo er konan líka mikill tónlistaráhugamaður, þótt hún sé í allt öðrum geira. Hún kemur hérna inn og setur Sinéad O"Connor á fóninn, þannig að þetta er samvinnuverkefni.“ Þegar Þráinn er ekki að hlusta á tónlist í herberginu æfir hann sig á gítarinn. Spurður út í andrúmsloftið í rokkrýminu segir hann það mjög gott. „Ég er búinn að spyrja nágranna mína hvort þetta trufli þá eitthvað og einn sagði að ég ætti nú bara að hækka heldur en hitt, þannig að þetta er alveg dásamlegt.“ Hann hefur alla tíð verið mikill aðdáandi Kiss og hefur safnað ýmsum munum tengdum sveitinni í gegnum árin, þar á meðal árituðum plötum, Paul Stanley-hasarfígúrum og árituðum myndum. Hann er meira að segja með Kiss-nestisbox uppi á hillu sem að sjálfsögðu verður aldrei notað. „Ég var heilaþveginn af Kiss þegar ég var lítill og man ekki eftir mér öðruvísi. Frændi minn var mikill Kiss-aðdáandi og eftirlét mér allt sitt plakatasafn á sínum tíma,“ segir hinn 35 ára Þráinn, sem sá goðin sín fyrst á tónleikum þegar hann var tólf ára. „Söfnunaráráttan er fyrst og fremst vínyl-„geðveiki“ og þar læt ég ekkert stoppa mig þegar kemur að Kiss.“ Sem dæmi á hann plötuna Lick It Up í mörgum mismunandi útgáfum, þar á meðal innsiglaðri, mexíkóskri og japanskri. Síðustu Kiss-plötu, Sonic Boom, keypti hann í tveimur vínylútgáfum, á geisladiski, á geisla- og mynddiski og í japanskri útgáfu. Hann kaupir einnig allar sólóplötur meðlima Kiss, þar á meðal trommuleikarans Peters Kriss. „Þær eru allar alveg hræðilegar, hundleiðinlegt djassað rugl en ég kaupi þær samt.“ Samanlagt eru Kiss-titlarnir í herberginu orðnir hátt í eitt þúsund talsins. Þrátt fyrir aðdáun hans á Kiss segist hann ekki viss um hvort hægt sé að falla fyrir hljómsveitinni á fullorðinsárum. „Þetta er svo mikill partur af því að alast upp. Allar plöturnar eru eins og tímavélar fyrir mann,“ segir hann og telur þetta ekki verra áhugamál til dæmis golf. Hann á einmitt erfitt með að skilja hvers vegna menn ákveða á einhverjum tímapunkti að hætta að hlusta á uppáhaldstónlistina sína. „Mér finnst það léleg afsökun að einhver haldi að hann þurfi að fullorðnast. Það er bara rugl. Menn eiga að vera heilir í sínu og hafa gaman að þessu. En ég er fyrstur til að viðurkenna að þetta er bara klikkun.“[email protected]
Tónlist Mest lesið Ein glæsilegasta skvísa landsins komin á fast Lífið Má gæi úr Húsasmiðjunni vera á listanum þínum? Lífið Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda Lífið Dóttir Anítu og Hafþórs komin í heiminn Lífið Reykti pabba sinn Lífið Ragga Sveins snýr aftur til Íslands Lífið Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Gagnrýni Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Lífið Tara Sif og Elfar selja íbúðina Lífið Gervigreindin heillar Ólaf Ragnar upp úr skónum Lífið Fleiri fréttir Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Sjá meira