Tónlist

Breyttu stefi eftir kvörtun frá útgáfu White Stripes

Meg White og Jack White.
Meg White og Jack White.
„Það er búið að skipta laginu út. Nýju auglýsingarnar eru með öðru lagi. Þetta var bara svona gítarriff,“ segir Hörður Harðarson hjá VERT markaðsstofu sem sér um markaðsmál fyrir smálánafyrirtækið Hraðpeningar.

Útgáfurisinn EMI hafði samband við Hraðpeninga fyrir tæpum mánuði og kvartaði undan auglýsingastefi fyrirtækisins. Stefið þykir afar líkt kafla úr laginu Seven Nation Army með hljómsveitinni White Stripes, sem kom út á plötunni Elephant og var eitt af vinsælustu lögum ársins 2003.

Hörður segir stefið hafa verið keypt af tónlistarmanni hér á landi. „Þeir gerðu athugasemd, fannst þetta of líkt. Við sögðum þetta ekki of líkt. En við ætlum ekki að standa í einhverri lagadeilu út af stefi í útvarpsauglýsingu. Þannig að við skiptum því út, þar með er málið búið,“ segir hann.

Spurður hvort Hraðpeningar hafi þurft að greiða bætur til EMI eða White Stripes segir Hörður svo ekki vera.

Geturðu sagt mér hvaða listamaður seldi ykkur lagið?

„Ég ætla ekki að blanda öðrum inn í þetta.“

En er verið að reyna að líkja eftir öðru frægu popplagi í nýju auglýsingunum?

„Nei, það er bara svona gítarriff.“

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.