Tónlist

Samstarf Bigga og John Grant vindur upp á sig

„Við erum að vinna í plötunni hans. Þetta er búið að vera mjög gaman," segir Biggi Veira.

Upptökur á nýjustu plötu bandaríska tónlistarmannsins John Grant hafa farið fram að undanförnu hér á landi og er útgáfa fyrirhuguð í haust. Biggi Veira úr GusGus hefur verið Grant til halds og trausts, bæði sem upptökustjóri og meðhöfundur laganna. „Við náum vel saman. Við erum fæddir á svipuðum tíma og erum á svipuðum slóðum í tónlistinni," segir Biggi.

Eins og Fréttablaðið greindi frá í fyrra kynntust þeir þegar Grant spilaði á Iceland Airwaves síðasta haust. Grant er mikill aðdáandi GusGus og óskaði eftir fundi með Bigga, sem var hið minnsta mál. Þeir ákváðu að hittast aftur í janúar og ætlaði Biggi að hjálpa honum eitthvað með plötuna. „Við unnum fimm lög og upp frá því var hann afskaplega ánægður," segir Biggi.

Síðan þá hefur samstarfið undið upp á sig. Í staðinn fyrir að klára plötuna í Texas ákvað Grant að halda upptökunum áfram hér á landi með Bigga. Hann verður búsettur á Íslandi fram á sumar en tónleikar með honum verða í Háskólabíói 19. júlí þar sem afrakstur samstarfsins verður vafalítið frumfluttur.

Þessi nýja plata fylgir í kjölfar Queen of Denmark sem fékk góða dóma og var kjörin plata ársins 2010 af breska tónlistartímaritinu Mojo. Margir bíða hennar því með mikilli eftirvæntingu.

Grant sagði í nýlegu viðtali við BBC að hann og Biggi hafi smollið saman enda báðir hrifnir af tónlist hvors annars.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.