Tónlist

Nas kveður fortíðina

Bless bless Nas skildi við söngkonuna Kelis fyrir þremur árum og er nú kominn með nýja plötu.
Bless bless Nas skildi við söngkonuna Kelis fyrir þremur árum og er nú kominn með nýja plötu.
Tíunda plata rapparans Nas kemur út í næstu viku. Hann segir plötuna afar mikilvæga fyrir sig, þar sem hann þurfi að segja skilið við fortíðina.

Þriðjudaginn níunda ágúst í fyrra sendi rapparinn Nas frá sér lagið Nasty. Hálfu ári síðar tilkynnti hann á Twitter-síðu sinni að ný plata væri tilbúin, sú tíunda í röðinni. Hún kemur út í næstu viku og nefnist Life is Good.

Titillinn er vísun í afslappaðan Nas, sem vill kveðja fortíðina og taka nýju lífi opnum örmum. Hann og söngkonan Kelis skildu árið 2009, eftir sex ára hjónaband. Skilnaðurinn fór í hart og nýja platan virðist hafa átt sinn þátt í að koma rapparanum aftur á sporið. Hann hefur borið plötuna saman við plötuna Here, My Dear, þar sem Marvin Gaye fór yfir hjónaband sitt og Önnu Gordy.

Heill her upptökustjóra kom að plötunni, eins og raunin er oft í hipphopp-heiminum. Einn af þeim er reynsluboltinn Salaam Remi og sagði hann í viðtali um plötuna að ef hann gerði hipphopp, yrði það að vera eitthvað sem viðvaningar gætu ekki rappað. „Það er eins gott að menn hafi eitthvað að segja," sagði hann. Annar upptökustjóri, No I.D., vildi leita í fortíðina á plötunni. „Ég vildi gera tónlist sem myndi leyfa Nas að vera Nas," sagði hann.

„Ég hef ekki hugmynd um hvað krakkarnir eru að gera í dag, en ég vildi að Nas gerði það sem hann gerir best."

[email protected]


Tengdar fréttir

sagan af græna kjólnum á umslaginu

Græni kjóllinn sem liggur í kjöltu Nas á umslagi plötunnar er brúðarkjóll söngkonunnar Kelis, fyrrverandi eiginkonu rapparans. Þau eiga saman einn son.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.