Lífið

Stranglega bannað að tjá sig um tökur

noah Leikarinn Russell Crowe fer með aðalhlutverkið í myndinni Noah sem tekin var upp hér á landi í sumar.
noah Leikarinn Russell Crowe fer með aðalhlutverkið í myndinni Noah sem tekin var upp hér á landi í sumar.
Þagmælska er lykilatriði ef fólk ætlar að starfa við erlendar stórmyndir hér á landi. Skrifa þarf undir samning þess efnis og ströng viðurlög eru við brotum á honum.

Þeir sem starfa við þær erlendu kvikmyndir sem teknar eru hér á landi eru bundnir stífri þagnarskyldu. Skrifað er undir samning áður en tökur hefjast til að vernda framleiðendur myndanna gegn því að eitthvað leki út um söguþráð, umgjörð, útlit þeirra og annað slíkt. Allt er þetta hluti af markaðssetningu hverrar myndar fyrir sig enda vilja framleiðendurnir geta stýrt því hvað fer út í loftið af upplýsingum um myndirnar.

Fyrirtækið True North hefur aðstoðað við tökur á fjölda mynda hér á landi, nú síðast stórmyndinni Noah með Russell Crowe í aðalhlutverki. Næst á dagskrá hjá fyrirtækinu er nýjasta mynd Bens Stiller, The Secret Life of Walter Mitty, en tökur á henni eru nýhafnar.

Aðspurð segir Helga Margrét Reykdal, framkvæmdastjóri hjá True North, að hátt í fjögur hundruð manns hafi skrifað undir samning um þagmælsku fyrir tökurnar á Noah. Hún segir engan hafa brotið samninginn og minnist hún þess heldur ekki varðandi aðrar myndir.

„Það virða allir og skilja eðli málsins. Þetta er líka hluti sem framleiðendur verða að verja sig gegn í dag. Netið er það virkt og það eru allir á einhvers konar samskiptavefjum. Það þarf að gæta þess að fólk sé ekki að setja neitt þar inn sem skiptir máli í þessu samhengi," segir Helga Margrét.

„Þetta snýst um að fólk treysti okkur og vilji koma hingað aftur. Ég held að enginn vilji gera þetta því það er ekki þess virði. Við viljum öll fá þessi verkefni hingað því þau skipta okkur öll máli," segir hún.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.