Lífið

Svíar eru víst fyndið fólk

Sá fyndnasti í svíþjóð Johan Glans er talinn fyndnasti maður Svíþjóðar. Hann verður með uppistand í Þjóðleikhúskjallaranum á laugardag. Mynd/Johanna Ankarcrona
Sá fyndnasti í svíþjóð Johan Glans er talinn fyndnasti maður Svíþjóðar. Hann verður með uppistand í Þjóðleikhúskjallaranum á laugardag. Mynd/Johanna Ankarcrona
Uppistandarinn Johan Glans kemur fram í Þjóðleikhúskjallaranum á laugardag. Sýningin samanstendur af glænýju efni og nefnist World Tour of Scandinavia.

Sænski grínistinn Johan Glans hefur verið nefndur fyndnasti maður Svíþjóðar og er heimsóknin til Íslands liður í ferðalagi hans um Norðurlöndin. Glans segir sænskan húmor nokkuð líkan þeim danska og finnska á þann hátt að kaldhæðnin er allsráðandi. „Ég hef heimsótt öll Norðurlöndin fyrir utan Ísland og veit því ekki hvort sænski húmorinn er líkur þeim íslenska, en ég mundi segja að hann væri svolítið í ætt við þann breska enda eru Norðurlandabúar upp til hópa bælt fólk og það brýst fram í húmor þeirra."

Glans hefur verið nefndur fyndnasti maður Svíþjóðar, eða „Sveriges roligaste man". Hann segir titilinn ekki hrjá sig þó hann finni stundum fyrir því að fólk ætlist til að hann sé stöðugt með glens og gaman á mannamótum. „Ég finn stundum fyrir því í veislum að fólk bíður eftir því að ég segi eða geri eitthvað fyndið. Ég held samt að það sé betra að vera talinn sá fyndnasti heldur en leiðinlegasti maður Svíþjóðar. Það væri agalegt."

Sumir vilja meina að Svíar séu upp til hópa ekki fyndnir og segist Glans taka því sem móðgun. „Ég veit að við eigum það til að sitja þunglynd í Ikea-sófanum okkar og borða rúgbrauð en við erum samt fyndin! Svíar elska húmor og uppistand er ofsalega vinsælt hér," segir grínistinn sem mun fjalla um allt milli himins og jarðar á sýningu sinni.

„Efnið er persónulegt og ég mun meðal annars tala um kirkjuferðir, hefðir, barnaafmæli og aðra hluti sem hafa hent mig í lífinu."

Þetta er í fyrsta sinn sem Glans sækir Ísland heim og kveðst hann spenntur fyrir heimsókninni. Hann mun dvelja hér í fjóra daga og hyggst nýta tímann til að fara í hvalaskoðun, heimsækja Bláa lónið og skoða Geysi.

Sýningin verður laugardaginn 29. september klukkan 20 og mun Ari Eldjárn hita mannskapinn upp fyrir Glans. [email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.