Lífið

Íslensk stúlka etur kappi í Danmarks næste Topmodel

Guðrún ásamt danska tónlistarmanninum Christopher. Kanal4/Krestine Havemann
Guðrún ásamt danska tónlistarmanninum Christopher. Kanal4/Krestine Havemann
"Ég er ekkert svo hrifin af því að horfa á mig í sjónvarpinu," segir hin tvítuga Guðrún Eir Hermannsdóttir, sem tekur þátt í raunveruleikaþáttunum Danmarks Næste Topmodel sem sýndir eru þessa dagana á Kanal 4.

Guðrún Eir flutti til Danmerkur með foreldrum sínum, Hermanni Guðmundssyni og Oddnýju Ingimundardóttur, þegar hún var átta ára gömul og búa þau í bænum Esbjerg á Jótlandi.

Guðrúnu Eir hafði ekki látið sig dreyma um fyrirsætustörf áður en ákvað að slá til er hún sá prufur auglýstar fyrir þættina í Árósum. "Mig langaði að gera eitthvað öðruvísi. Áður en ég var með í þáttunum var ég mjög feimin fyrir framan myndavélina," segir Guðrún. Þættirnir voru svo teknir upp í byrjun sumars í Kaupmannahöfn. "Upptökuferlið var allt öðruvísi en ég bjóst við og stundum frekar erfitt. Við bjuggum fimmtán stelpur saman í íbúð og máttum ekki gera mikið utan við tökurnar."

Guðrún Eir á erfitt með að horfa á sjálfa sig í sjónvarpinu og segir sömu sögu gilda um fjölskyldu sína.

"Þau eru mjög stolt af mér en finnst frekar erfitt að horfa á þættina. Upptökuferlið er gjörólíkt lokaútkomunni í sjónvarpinu. Stundum kannast ég varla við það sem er að gerast á skjánum. Ég hugsa að ég fari ekki aftur í sjónvarpið," segir Guðrún, sem þó er spáð góðu gengi í keppninni.

Guðrún Eir Hermannsdóttir.
Fimm þáttum er nú lokið af seríunni og því tíu stúlkur eftir. Í síðasta þætti var Guðrún valin til að leika aðalhlutverkið í tónlistarmyndbandi með danska söngvaranum Christopher sem er mjög vinsæll í föðurlandi sínu.

Guðrún Eir stefnir ekki endilega á fyrirsætubransann í framtíðinni en stúlkurnar mega ekki sitja fyrir á meðan þættirnir eru í sýningu.

Guðrún reynir að sækja Ísland heim einu sinni á ári. Hana langar að fínpússa íslenskuna sem hún er orðin ansi ryðguð í. "Draumurinn er að búa í London og verða fatahönnuður.

[email protected]





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.