Viðskipti innlent

Eignarrétti ógnað með lögum um lífeyrissjóði

[email protected] skrifar
fólk Lífeyrissjóðirnir segjast ekki mega gefa eftir eignir, enda séu þær í eigu lífeyrisþega.fréttablaðið/anton
fólk Lífeyrissjóðirnir segjast ekki mega gefa eftir eignir, enda séu þær í eigu lífeyrisþega.fréttablaðið/anton
Lífeyrissjóðirnir leggja nú þegar fjármuni í varasjóði, segir Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar, kallaði eftir því í Fréttablaðinu í gær að þeir greiddu í slíkan sjóð. Neituðu þeir því og reiddu sig á lánsveð þyrfti að skoða hvort meina ætti þeim að vera á almennum lánamarkaði.

„Það breytir hins vegar ekki því að þótt að varasjóður sé til staðar, þá ber lífeyrissjóðunum að ávaxta fé sjóðsfélaga sinna og hafa ekkert frjálst val um það hvort þeir gefa eftir eignir, hvorki þessar eignir né aðrar. Þetta er það réttarumhverfi sem við búum við," segir Þórey.

Hún segir eignum lífeyrissjóða í raun þegar hafa verið ráðstafað til þess verkefnis að veita lífeyri. Fjármunir lífeyrissjóðanna séu eign lífeyrisþeganna. Þeir hafi ekki heimildir til að nota féð eins og þeir vilji og vart sé vilji fyrir slíkum heimildum, sé dæmið hugsað til enda.

„Einhvern tímann var ákveðið fyrir alllöngu síðan að það þætti nauðsynlegt að vera með eignarréttinn verndaðan í stjórnarskrá. Í grunninn má rekja það til verndar gagnvart yfirvöldum, fyrst konungi og síðan yfirvöldum. Þetta eru í sjálfu sér sömu leiðirnar núna. Nú fer að reyna á eignarréttinn."

Þórey segir að mikilvægt sé að skýrar reglur gildi um það hvernig sjóðirnir megi fara með fjármuni sína. Sérstaklega þar sem allir eru skyldaðir til að greiða í kerfið. Nokkuð skorti á gagnkvæman skilning á því að lífeyrissjóðir og stjórnvöld þurfi að virða þær reglur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×