Sport

Hagræðing úrslita

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Luciano Moggi, fyrrum framkvæmdastjóri Juventus, er einn þeirra sem komið hefur að hagræðingu úrslita. Juventus þurfti að spila í næstefstu deild fyrir vikið.
Luciano Moggi, fyrrum framkvæmdastjóri Juventus, er einn þeirra sem komið hefur að hagræðingu úrslita. Juventus þurfti að spila í næstefstu deild fyrir vikið. Nordicphotos/Getty
Íslenskar getraunir standa fyrir málþingi um hagræðingu úrslita í íþróttahreyfingunni í höfuðstöðvum KSÍ miðvikudaginn 20. mars frá 12-14.

Hagræðing úrslita er stigvaxandi vandamál sem ógnar íþróttahreyfingunni í heild sinni að því er segir í tilkynningu vegna fundarins.

Áhugasamir ættu að leggja leið sína í Laugardalinn en boðið verður upp á súpu og brauð frá 11.45. Aðgangur er ókeypis. Skráningu á fundinn líkur í dag á netfangið [email protected].

Þeir sem ekki eiga þess kost að sitja fundinn geta fylgst með honum á netinu. Nánari upplýsingar má fá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×