Harmageddon

Daft Punk koma fram á Grammy verðlaununum á næsta ári

Orri Freyr Rúnarsson skrifar
Daft Punk
Daft Punk
Nú hefur verið tilkynnt að franska rafsveitin Daft Punk mun koma fram á Grammy verðlaunaafhendingunni sem fer fram þann 26.janúar næstkomandi. Hljómsveitin er tilnefnd til fimm Grammy verðlauna að þessu sinni og þar á meðal fyrir plötu ársins.

Verður þetta í fyrsta skipti sem hljómsveitin leikur lög af plötunni Random Access Memories og í raun fyrstu tónleikar Daft Punk síðan að sveitin kom fram á Grammy verðlaununum árið 2008. 

Skipuleggjendur Grammy verðlaunana segjast vera afar ánægðir með að hafa náð samningum við hljómsveitina og segja það hafa skipt miklu máli hversu vel hafi tekist til þegar að vélmennin spiluðu ásamt Kanye West á hátíðinni árið 2008.



×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.