Bíó og sjónvarp

Fyrsta sýnishorn úr Borgríki II

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Borgríki II - Blóð hraustra manna verður frumsýnd næsta haust.
Borgríki II - Blóð hraustra manna verður frumsýnd næsta haust.
Fyrsta sýnishorn úr kvikmyndinni Borgríki II - Blóð hraustra manna hefur verið frumsýnt. Um er að ræða svokallaða kitlu (teaser) en myndin er sjálfstætt framhald myndarinnar Borgríki sem kom út árið 2011.

Myndin segir frá Hannesi, metnaðarfullum yfirmanni innra eftirlits lögreglunnar. Til að ráða niðurlögum stórra glæpasamtaka ákveður hann að rannsaka Margeir, spilltan yfirmann í fíkniefnadeild lögreglunnar, eftir að hafa fengið ábendingu frá Gunnari, fyrrum glæpaforingja, sem situr í fangelsi. Hannes afræður að koma ungri lögreglukonu, Andreu, í stöðu njósnara á ferðum Margeirs. Aðgerðirnar leiða Hannes á hálan ís þar sem erfitt reynist að halda skýru höfði eftir því sem hann kemst nær takmarki sínu, að ná bæði Margeiri og erlenda glæpaforingjanum.

Leikstjóri myndarinnar er Olaf de Fleur og skrifar hann handritið ásamt Hrafnkeli Stefánssyni. Í helstu hlutverkum eru Darri Ingólfsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Zlatko Krickic, Sigurður Sigurjónsson og Hilmir Snær Guðnason. Framleiðendur eru Kristín Andrea Þórðardóttir og Ragnar Santos.

Borgríki II - Blóð hraustra manna verður frumsýnd næsta haust og hægt er að sjá kitluna í spilaranum hér fyrir neðan.

Borgríki II - Teaser #1 from Olaf de Fleur on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.