Skoðun

Sjálfbær umbreyting til aukinna atvinnutækifæra

Forysta norrænu verkalýðshreyfingarinnar skrifar
Á tímum óstöðugleika í efnahagsmálum verða Norðurlandaríkin að fjárfesta til framtíðar. Þetta er skoðun norræna verkalýðssambandsins (NFS).

Samstarfshefð norrænu ríkjanna er traust og nýtur alþjóðlegrar virðingar, en það dugir ekki til. Norrænar ríkisstjórnir verða að þróa áfram þessa samstarfshefð og auka aðlögunarhæfni vinnumarkaðarins. Til að styrkja samkeppnishæfni sína þurfa Norðurlandaríkin að leggja áherslu á sjálfbæran hagvöxt og fulla atvinnu. Sammælast þarf um framtíðarstefnumótun um innviði samfélagsins, vísindi og menntun og okkar miklu náttúruauðlindir.

Þessar framtíðarfjárfestingar er brýnt að forsætis- og atvinnumálaráðherrar Norðurlandaríkjanna ræði þegar þeir hittast á vinnumarkaðsfundi í Stokkhólmi í dag, 16. maí.

Lykillinn er aðlögunarhæfni

Lykillinn að velgengni Norðurlandaríkjanna er aðlögunarhæfni vinnumarkaðarins. Hugmyndafræðin byggir á öflugri verkalýðshreyfingu og víðtækri samvinnu við breytingar sem tryggir að einstaklingurinn verður ekki fórnarlamb þeirra. Skipulagið útheimtir velferðarkerfi sem veitir efnahagslegt öryggi í atvinnuleysi og stuðning til atvinnuleitar, mannsæmandi framfærslu, möguleika á að sækja nýja færni til að auðvelda hreyfanleika á vinnumarkaði, bæði milli atvinnurekenda og milli landa. Hér eiga ríkisstjórnir okkar mikið verk óunnið til að auka öryggi og minnka atvinnuleysi, sem hefur reyndar náð sögulegum hæðum á sumum svæðum.

Tækifæri gefst á vinnumarkaðsfundinum. Atvinnuleysi ungs fólks er í brennidepli og norræna verkalýðshreyfingin leggur til ýmsar lausnir til að virkja atvinnulaus ungmenni. Einnig er þörf á sameiginlegum norrænum fjárfestingum til sjálfbærrar framtíðar. Kominn er tími til að taka stefnumarkandi frumkvæði til að auka atvinnu og samkeppnishæfni bæði til skemmri og lengri tíma.

Virkt samgöngukerfi er forsenda þróunar á Norðurlöndum. Í öllum norrænu ríkjunum eru innviðir samfélagsins í fjársvelti. Hér eru miklir möguleikar til samvinnu og sameiginlega eiga norrænu ríkisstjórnirnar að leggja áherslu á að efla lestarsamgöngur, sem eru nauðsynlegar vegna sameiginlegs vinnumarkaðar þar sem þær stuðla að aukinni framleiðni og minnka atvinnuleysi á svæðinu auk þess sem þær tryggja umhverfisvæna vöruflutninga.

Samfélagslegur ávinningur af sameiginlegum vinnumarkaði getur fyrst orðið að veruleika þegar innviðir landanna eru nægilega samtvinnaðir. Sjálfbærir innviðir munu einnig í sjálfu sér skapa störf þar sem fjármagnskostnaður er lítill og nægt starfsfólk er fyrir hendi. Væntanleg fjárfestingarþörf gæti skapað um 100.000 ný störf á Norðurlöndunum. Til mikils er að vinna.

Dýrmætasti auðurinn

Vel menntað og hæft starfsfólk er dýrmætasti auðurinn og ýtir undir nýsköpun og þróun. Hvert Norðurlandaríkjanna fyrir sig er of smátt til að geta eitt og sér verið í forystu menntunar og vísinda, meiri samvinna eykur möguleikana.

Ríkisstjórnir landanna eiga að leggja áherslu á:

  • Sameiginlega norræna áætlun um vísindasamvinnu, sem einfaldar og eykur samstarfsmöguleika milli vísindamanna í fremstu röð.
  • Aukna möguleika vísindamanna til að sækja um styrki í öllum Norðurlandaríkjunum. Til að auka hreyfanleika meðal þeirra ber að skilyrða að styrkirnir séu nýttir í því landi sem þeir eru veittir. 
  • Að auka flæði milli vísindasamfélagsins, atvinnulífsins og hins opinbera. Tryggja að opinberir starfsmenn geti einnig samtvinnað starf á vinnumarkaði og rannsóknarvinnu.


Náttúruauðlindir og nýtingu þeirra til framtíðar þarf einnig að ræða. Umhverfisáhrif í einu landi hafa áhrif um allt svæðið. Aukið eftirlit þarf með námugreftri, tryggja þarf að þungmálmar eitri ekki umhverfið, þ.m.t. ferskvatn og sjó. Draga verður úr köfnunarefnis- og fosfórmengun frá landbúnaði og auka stuðning við vistvænan landbúnað. Umhverfið verður að vera í forgangi. Ekki þarf að óttast að tækni sem dregur úr losun hamli sköpun nýrra starfa, þvert á móti. Vistvænar, hagkvæmar og sjálfbærar fjárfestingar eru framtíðin. 



Gylfi Arnbjörnsson, ASÍ

Erik Jylling, AC

Elín Björg Jónsdóttir, BSRB

Bente Sorgenfrey, FTF

Lizette Risgaard, LO Danmark

Gerd Kristiansen, LO Norge

Sture Fjäder, AKAVA

Anders Folkestad,Unio

Lauri Lyly, SAK

Jorunn Berland, YS

Mikko Mäenpää, STTK

Karl-Petter Thorwaldsson, LO Sverige

Jess Berthelsen, SIK Grönland

Göran Arrius,

Saco Eva Nordmark, TCO

Lóa Brynjúlfsdóttir, NFS

NFS – Norræna verkalýðssambandið er samvinnuvettvangur norrænu verkalýðshreyfingarinnar. Í NFS eru sextán heildarsamtök launafólks á Norðurlöndum sem eru fulltrúar nærri 9 milljóna launamanna (nfs.net). Þessi grein birtist samtímis í dagblöðum á öllum Norðurlöndunum.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×