Bíó og sjónvarp

Skrifa handritið að Rétti 3

ÁP skrifar
Þeir Kristinn, Jón Ármann, Andri og Þorleifur skrifa þriðju seríuna af Rétti.
Þeir Kristinn, Jón Ármann, Andri og Þorleifur skrifa þriðju seríuna af Rétti. Fréttablaðið/Vilhelm

„Við stefnum á að taka Rétt í nýjar hæðir,“ segir Kristinn Þórðarsson einn af fjórum handritshöfunum að þriðju seríunni af íslensku lögfræðispennuþáttunum Rétti. Ásamt honum mynda þeir Þorleifur Arnarsson, leikstjóri, Jón Ármann Steinsson, handritshöfundur og Andri Óttarson, lögfræðingur og fyrrum framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins handritateymið.

Skrifin byrjuðu í síðustu viku og lýst Kristni vel á nýja teymið. „Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Þorleif til liðs við okkur og svo erum við Jón Ármann vinir síðan í Los Angeles þar sem hann lærði handritaskrif. Andri er svo ekki bara fær penni heldur góður lögfræðingur og getur veitt okkur líka faglega ráðgjöf við skrifin,“ segir Kristinn sem sjálfur kom að fyrstu Réttar seríunni en síðastu tvær hafa verið skrifaðar af Sigurjóni Kjartanssyni og Margréti Örnólfsdóttur.

Búist er við því að þættirnir fara í framleiðlsu og sýningu á Stöð 2 á næsta ári en þriðja serían mun telja á átta þáttum. Kristinn segir þá ætla að byggja á sama grunni og leikarateymi og í fyrstu tveimur seríunum. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Magnús Jónsson voru meðal aðalleikara í fyrstu tveimur seríunum. „Við kynnum allavega einn nýjan karakter til leiks. Við stefnum á að koma á óvart og koma með meiri spennu inn í þessa seríu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.