Tíska og hönnun

Gefur út hárgreiðslubók fyrir ungar stúlkur

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Bók Theodóru, Hárið, sló algjörlega í gegn hjá ungum stúlkum.
Bók Theodóru, Hárið, sló algjörlega í gegn hjá ungum stúlkum. fréttablaðið/arnþór
„Það var alveg greinilegt að fólk þurfti á ráðleggingum að halda varðandi hárið,“ segir Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack, höfundur metsölubókarinnar Hárið, sem kom út fyrir jólin í fyrra.

Bókin sló rækilega í gegn og hefur Theodóra nú lagt drög að næstu bók. „Ég er að vinna að barnabók fyrir stelpur á aldrinum 2-12 ára, þar sem ég ætla að kenna auðveldar greiðslur sem bæði mamma og pabbi geta hæglega gert áður en stelpurnar fara í skólann eða leikskólann.“

Hún segir ljóst að áhugi á bókum sem þessum hafi verið gríðarlegur. „Hárið sló alveg í gegn hjá yngri kynslóðinni og ég fór að bölva því að hafa ekki haft fleiri barnagreiðslur.“

Vinnsla bókarinnar er í fullum gangi enda er stefnt að því að gefa hana út fyrir jólin. „Við förum frekar seint af stað en það er allt í lagi, ég vinn miklu betur undir álagi. Bókin verður alveg ótrúlega spennandi en við viljum að hún sé aðeins meira en bara um hár og hárgreiðslu. Það á að vera skemmtilegt að skoða hana áður en maður fer að sofa,“ segir Theodóra.

Hún leitar að hármódelum á aldrinum 2-12 ára og geta áhugasamir sent ljósmynd af barni sínu á netfangið [email protected], með upplýsingum um nafn og aldur barnsins, nafn forráðamanns og símanúmer eða netfang.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.