Bíó og sjónvarp

Hollywood-stjarna í Borgríki II

Freyr Bjarnason skrifar
Leikarinn J.J. Feild og Zlatko Krickic i hlutverkum sínum í Borgríki II.
Leikarinn J.J. Feild og Zlatko Krickic i hlutverkum sínum í Borgríki II. Mynd/Hörður Ásbjörnsson
J.J. Feild, sem lék í Hollywood-myndinni Captain America, var staddur hér á landi í gær til að leika í Borgríki II - Blóð hraustra manna, sem er framhald glæpamyndarinnar Borgríkis sem kom út 2011.

„Hann leikur mann sem heitir Marcus. Hann kemur frá erlendum glæpahring og er að fylgja eftir ákveðnu máli hér á landi í tengslum við einn af okkar aðalkarakterum, Sergej, “ segir framleiðandinn Kristín Andrea Þórðardóttir. Feild fer af landi brott í dag eftir að hafa lokið þessum eina tökudegi.

Aðspurð segir hún Feild vera vin Ingvars E. Sigurðssonar, sem leikur eitt aðalhlutverkanna í myndinni. „Þeir hafa þekkst í tíu ár og hann langaði virkilega að koma til landsins og leika með okkur.“

Feild og Ingvar léku einmitt saman í myndinni K-19: The Widowmaker sem kom út 2002 með Harrison Ford í aðalhlutverki.

Tökur á Borgríki II- Blóð hraustra manna hófust um miðjan júlí og lýkur 22. september. Þær hafa að mestu farið fram á höfuborgarsvæðinu. „Þetta er búið að ganga virkilega vel. Það hafa verið miklar áskoranir en einhvern veginn hefur þetta náð að ganga upp.“

Frumsýning er fyrirhuguð haustið 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.